Páfabíll

29 April 2005 | Andrés

Eitt af vörumerkjum Jóhannesar Páls II var hvíti bíllinn með glerbúrinu sem hann sat í við hátíðleg tækifæri. Núna gefst almenningi hins vegar kostur á að kaupa bíl nýja páfans, Benedikts XVI, á eBay:

Nafn fyrri eiganda kemur skýrt fram
Síðasti eigandi: Jósef Ratzinger

Sem stendur er hæsta boð rúmar 40 þúsund evrur, sem hlýtur að teljast frekar hátt verð fyrir lítinn VW Golf:

Áhugasamir (og/eða ofsatrúaðir katólikkar) geta litið á uppboðið og reynt að eignast þessa bifreið, sem hlýtur að teljast heilagasti smábíll sögunnar.

1 Comment

  1. Von Essling said on 1 May 2005 at 01:31:

    Flottast væri að eignast Hitlerjugendbúning páfans.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.