Archives for May 2005
Nýlendan Ísland
29 May 2005 | molar | 4 Comments
Við lentum í einum ótrúlegustu umræðum sem ég hef upplifað í gærkvöldi. Við vorum í partíi hjá danskri stelpu sem er með okkur á þýskunámskeiði, og hún var alveg sérstaklega ánægð með að fá Íslendinga heim til sín. Hér eru brot af umræðunum:
Danska: Það er nú alveg staðreynd að Grænland og Ísland eru órjúfanlegur hluti […]
Grillveður
27 May 2005 | molar | No Comments
Mér þykir bara alveg hreint ágætt þegar hitinn er kominn uppí 17 gráður klukkan átta að morgni. Enn skemmtilegra þykir mér að hann eigi eftir að skríða sæmilega uppfyrir 30 gráðu markið áður en dagur er úti. Aðstæðurnar verða nýttar til fullnustu: Í kvöld er grillveisla!
Veðuráhugamenn geta fylgst með horfunum í Berlín á þessari síðu.
Svöngu börnin í háskólanum
25 May 2005 | molar | No Comments
Nýverið var mötuneyti skólans okkar rækilega endurbætt, að því er virðist til hagræðingar. Einhver launakostnaður hlýtur að minnsta kosti að sparast, því eftir breytingar þurfum við sjálf að skófla matnum á diskana okkar. Í hádeginu fór ég dálitlu offari í að skammta mér kartöflumús og súrkál, þannig að ég neyddist til að leifa slatta. Samviskubitið […]
Read ‘Svöngu börnin í háskólanum’
Verkfall
24 May 2005 | molar | 1 Comment
Meðan við drukkum morgunkaffið í eldhúsinu í dag heyrðum við útvarpsfréttamenn ræða um yfirstandandi verkfall BVG, sem heldur úti flestum almenningssamgöngum Berlínar. Við nánari eftirgrennslan komumst við að því að um væri að ræða „viðvörunarverkfall“, þar sem starfsmennirnir legðu niður störf eina morgunstund til að sýna öllum að þeim sé alvara. Þetta dirfast þeir að […]
Annar í Eurovision tvö
22 May 2005 | molar | 3 Comments
Í dag eru nákvæmlega 11 mánuðir síðan við fluttum til Berlínar, ótrúlegt en satt. Enn ótrúlegra þykir mér að í alla þessa 335 daga höfum við aldrei pantað okkur heimsenda pizzu, ekki fyrr en í dag. Og óskaplega rann hún ljúflega niður. Barbeque-sósa, salami, laukur og kjúklingur er greinilega allt sem maður þarf til að […]
Eurovision tvö
20 May 2005 | molar | 5 Comments
Þótt Selma hafi klúðrað forkeppninni ætlum við að halda okkur við planið. Á laugardaginn verður þrusupartí á hamborgarastaðnum okkar (Hanks), þar sem Eurovision verður varpað uppá breiðtjald, þótt Selma hafi klúðrað forkeppninni…
Snýtt
19 May 2005 | molar | 1 Comment
Í Þýskalandi er ekki sogið uppí nefið — hér snýtir fólk sér. Fyrir vikið teljast snýtingar sæmilega raffínéraðar (enginn kippir sér t.d. upp við snýtingu við matarborðið) og allir er með Tempopakka í rassvasanum. Önnur afleiðing kemur í ljós núna í sumarbyrjun, þegar einhver nefrennslispest virðist vera að ganga í skólanum. Snýtikúltúrinn hefur það nefnilega […]
Túlkurinn
16 May 2005 | molar | No Comments
Það kemur nú ekki oft fyrir að ég læt ókunnugt fólk kippa mér úr jafnvægi, en það kom nú samt fyrir í gær. Við vorum orðin svo þreytt á skruddunum að við ákváðum að skreppa í bíó í grenndinni. Í Berlín eru sætin númeruð og það þarf yfirleitt engan stjarneðlisfræðing til að finna út hvar […]
Enn af Séð og heyrt
13 May 2005 | molar | 5 Comments
Eins og áður hefur komið fram fáum við Séð og heyrt vikulega sent í pósti. Í nýjasta blaðinu okkar er greint frá feðgum og veiðistangasmiðum sem helst hafa unnið það sér til frægðar að einn þeirra spilar á trommur í Landi og sonum og að saman hafa þeir smíðað veiðistöng handa Einari Bárðarsyni, þeim sómamanni. […]
Gælunöfn
13 May 2005 | molar | 1 Comment
Við tölum um okkar ástsælu skólafélaga þegar við erum í skólanum, og við tölum líka um þau þegar við erum heima. Strax í haust háði það okkur svolítið að vita ekki hvað allt þetta fólk héti, þar sem kennararnir ávarpa okkur með eftirnöfnum, svo við fórum fljótt að þróa með okkur eigið nafnakerfi. Hér er […]
Nýnasistar og annað fólk
11 May 2005 | molar | No Comments
Á sunnudaginn röltum við að Brandenborgarhliðinu til að fylgjast með opinberum hátíðarhöldum í tilefni 60 ára afmælis stríðsloka. Þar var slatti af fólki, en samt ekki eins margt og við bjuggumst við, og fyrirmenni í ræðustól. Stemmningin var einsog á frekar slöppum 1. maí á Hallærisplani. Nema það vantaði lúðrasveitina. Hægrimennirnir höfðu náð að stela […]
Read ‘Nýnasistar og annað fólk’
Áttundi maí
8 May 2005 | molar | 5 Comments
Í dag fagna Þjóðverjar því að fyrir sextíu árum lauk stríðinu sem tætti borgina okkar í sig. Það er greinilega búið að ala nasismann rækilega úr þjóðinni, því öll fjölmiðlaumfjöllun ber með sér að það hafi verið allt önnur þjóð sem stóð í stríðsrekstrinum. Hér er ekki talað um uppgjöf Þjóðverja fyrir bandamönnum, ekki einusinni […]
Waschmaschine!
5 May 2005 | molar | 1 Comment
Í einu horni baðherbergisins stendur nýjasta munaðarvara okkar hjónaleysanna: splunkuný þvottavél. Eftir tíu mánaða útreikninga og vangaveltur um hvernig væri best að haga þvotti á heimilinu komumst við nefnilega að þeirri niðurstöðu að til lengri tíma litið væri hagstæðara að eiga vél heldur en að punga alltaf út pening í sjálfsala á þvottahúsinu. Auk þess […]
Sól úti, sól inni
2 May 2005 | molar | 3 Comments
Í dag er heitasti dagur ársins til þessa í Berlínarborg. Alla helgina hefur veðrið leikið við okkur, en þar sem við þurfum að skila greinargerð og flytja fyrirlestur í þessari viku og taka próf og flytja annan fyrirlestur í þarnæstu viku höfum við verið fyrirmyndarnemendur og setið inni í íbúð við lærdóm.
Þegar hitinn fór upp […]