Sól úti, sól inni

2 May 2005 | Rúna

Í dag er heitasti dagur ársins til þessa í Berlínarborg. Alla helgina hefur veðrið leikið við okkur, en þar sem við þurfum að skila greinargerð og flytja fyrirlestur í þessari viku og taka próf og flytja annan fyrirlestur í þarnæstu viku höfum við verið fyrirmyndarnemendur og setið inni í íbúð við lærdóm.

Þegar hitinn fór upp í þrjátíu gráður í dag gátum við samt ekki setið á okkur og skelltum okkur út á tún. Þar úði og grúði af alls konar fólki, Spánverjum í meirihluta, sem lágu á bakinu og sleiktu sólina. Ég freistaðist allt of oft til að leggja frá mér skrudduna og loka augunum. Það var líka svo ósköp góð tilfinning.

Andrés fór heim á undan mér, enda ekki með jafnmikið úthald í sólböð og hinn helmingurinn. Meðan ég lá þarna ein heyrði ég í háværum strákum sem töluðu ástkæra, ylhýra móðurmálið. Mér telst svo til að þetta hafi verið í annað skipti á tveimur dögum sem að Íslendingar eru að þvælast fyrir utan húsið okkar.

Ekki er hægt að segja að ég sé sérlega brún eftir daginn, en ég er þó viss um að hafa orðið mér út um sex, sjö freknur á túninu.

3 Comments

  1. Sigga said on 5 May 2005 at 11:02:

    Ja takk, getid thid meilad mer heimilisfanginu ykkar.
    Er med akaflega metnadarfullar hugmyndir um postkortaskrif thessa dagana…

    Jamms.
    Bid ad heilsa Berlin.

  2. Svenni said on 5 May 2005 at 12:37:

    Það er ekki laust við að það gæti ákveðinnar andúðar á þeim Íslendingum sem hafa gerst svo djarfir að “þvælast fyrir utan húsið” ykkar.

  3. Ragnhildur litla frænka said on 9 May 2005 at 12:49:

    Það er líka óþolandi þegar maður er í útlöndum og rekst á Íslendinga fyrir tilviljun. Ég vil gjarnan geta hitt Íslendinga í útlöndum þegar ég óska þess, en þess á milli eiga þeir bara að vera annars staðar, takk fyrir!! :)

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.