Waschmaschine!

5 May 2005 | Rúna

Í einu horni baðherbergisins stendur nýjasta munaðarvara okkar hjónaleysanna: splunkuný þvottavél. Eftir tíu mánaða útreikninga og vangaveltur um hvernig væri best að haga þvotti á heimilinu komumst við nefnilega að þeirri niðurstöðu að til lengri tíma litið væri hagstæðara að eiga vél heldur en að punga alltaf út pening í sjálfsala á þvottahúsinu. Auk þess vorum við orðin hundleið á að burðast með sitthvorn troðfulla IKEA-pokann af óhreinu taui um götur borgarinnar í annarri hverri viku.

Þegar við keyptum okkur ísskáp í sumar datt næstum af okkur andlitið þegar annar sendillinn kom upp tröppurnar með skápinn á bakinu, eins og ekkert væri sjálfsagðara, meðan hinn sagði til vegar. Við vorum því ennþá meira hissa í þetta skiptið þegar sendillinn veigraði sér ekki við því að skella einu stykki af þvottavél upp á bakið. Eins og flestir vita eru þvottavélar blýþungar og enginn hægðarleikur að bera þær upp tvær hæðir.

Sendillinn fílsterki hafði þó ekki alveg jafn vandaðar fínhreyfingar, því þegar hann hafði lagt frá sér þvottavélina tókst honum að velta næstum öllu í baðherberginu um koll. Sléttujárnið mitt flaug á gólfið, og snúran sem var föst við snúru hárblásarans dró hárblásarann með. Það var með naumindum að ég gat bjargað ilmvatns- og rakspíraglösum frá falli. Það má því segja að sendillinn hafi verið eins og fíll í postulínsbúð.

Við erum búin að þvo tvisvar síðan vélin kom í hús, eins og við höfum sjaldan gert neitt jafn skemmtilegt. Alveg eins og í fyrrasumar þegar við byrjuðum að fara í þvottahúsið.

1 Comment

  1. Ragnhildur litla frænka said on 9 May 2005 at 12:51:

    Til hamingju með hana :)

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.