Áttundi maí

8 May 2005 | Andrés

Í dag fagna Þjóðverjar því að fyrir sextíu árum lauk stríðinu sem tætti borgina okkar í sig. Það er greinilega búið að ala nasismann rækilega úr þjóðinni, því öll fjölmiðlaumfjöllun ber með sér að það hafi verið allt önnur þjóð sem stóð í stríðsrekstrinum. Hér er ekki talað um uppgjöf Þjóðverja fyrir bandamönnum, ekki einusinni uppgjöf nasista. Hér er frekar talað um að Þjóðverjar hafi verið frelsaðir — svona svipað og Danmörk eða Auschwitz. Þjóðinni hefur þannig verið talið trú um að hún teljist til fórnarlamba nasismans á sama hátt og hver annar — hafi bara verið viðkvæm kona sem djöfullegur foringinn forfærði.

Vilji menn vera hlutlausari geta þeir líka fagnað „Kriegsende“ í dag — stríðslokum — eða slegist í lið með borgarstjóra Berlínar sem hefur útneft áttunda maí „Tag für Demokratie“ — dag lýðræðisins. Í dag á fólk að setjast niður í ró og spekt og hugleiða hvað lýðræðið er miklu betra en önnur stjórnarform sem Þýskaland hefur haft síðustu áratugina.

Frelsis- og lýðræðishjalið verður samt óttalega hjákátlegt þegar maður lítur til grey hægrimannanna sem vilja komast í skrúðgöngu og syrgja fall Þýskalands fyrir 60 árum. Lögum um fundafrelsi var breytt núna á vordögum, þannig að núna mega þeir sem standa of langt til hægri í pólitík hvorki safnast saman fyrir framan merkilega staði né á merkisdögum. Þótt tilgangurinn sé örugglega hinn besti, efast ég um að þetta verði til nokkurs — nema kannski að fjölga slagsmálum sem löggan lendir í. Sjáum hvernig fer…

5 Comments

  1. harpa said on 9 May 2005 at 14:32:

    ha ha.. lifi lýðræðið :)

  2. eliasingi said on 10 May 2005 at 16:39:

    Kannski er ég orðinn of þýskur en þessi texti þinn fór fyrir brjóstið á mér. Sérstaklega þessi setning:

    Þjóðinni hefur þannig verið talið trú um að hún teljist til fórnarlamba nasismans á sama hátt og hver annar — hafi bara verið viðkvæm kona sem djöfullegur foringinn forfærði.

    Ég fæ svona sting í hjartað þegar ég les þetta. Ekki veit ég nákvæmlega af hverju en þega ég hef fundið út úr því læt ég þig vita.

  3. Ágústa said on 11 May 2005 at 00:29:

    Ertu með mottu? Ef þú ert með mottu þá ertu of þýskur …

  4. eliasingi said on 13 May 2005 at 18:39:

    Nei, ég er ekki kominn með mottu enn en ég er að vinna í því. Þegar hún er komin ætla ég að kaupa mér harmonikku og leðurbuxur og fara svo á Oktoberfest með bjór og Bratwurst í nesti. Þá verð ég orðinn alger þjóðverji !! Eða er það ekki??

  5. eliasingi said on 13 May 2005 at 18:58:

    Mig langar að segja Andrési það að mér þykir það leitt að ég hafi sært blygðunarkennd hans með ummælum mínum um útlendinga. Hann fékk víst bara sting í hjartað vegna þessarar setningar:

    “Þessir útlendingar eru alltaf eitthvað furðulegir.”

    En ef maður les textann minn í samhengi þá var ég að reyna að spila með orðið útlendingar því það er svo afstætt. Það sem átti eiginlega að vera fyndið var að ég er eiginlega útlendingurinn í Þýskalandi og þar af leiðandi var ég að segja að ég væri líka furðulegur. Við erum öll útlendingar einhversstaðar og oft passar maður ekki inn í siða- og venjukerfið sem hefur þróast í samfélaginu sem maður dvelur í ! En þetta hefur greininlega algerlega misfarist og Andrés vinur minn hefur tekið þetta alveg á sig. Ég vissi bara ekki að Andrés væri svona viðkvæm sál!!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.