Enn af Séð og heyrt
13 May 2005 | Andrés
Eins og áður hefur komið fram fáum við Séð og heyrt vikulega sent í pósti. Í nýjasta blaðinu okkar er greint frá feðgum og veiðistangasmiðum sem helst hafa unnið það sér til frægðar að einn þeirra spilar á trommur í Landi og sonum og að saman hafa þeir smíðað veiðistöng handa Einari Bárðarsyni, þeim sómamanni. Með greininni fylgir nærmynd af sérsaumuðu handfangi veiðistangarinnar sem Einar keypti sér:

Það sem er kannski merkilegast við þessa mynd eru stafsetningarvillurnar, sem koma fram á tveimur sviðum. Annað er svið veiðistangarframleiðslunnar, þar sem gefið er í skyn að Einar sé sonur tveggja Bárða:

Hitt er svið séðogheyrtframleiðslunnar, þar sem Einar ber ekki lengur föðurnafn heldur nýmóðins ættarnafn, sem minnir dáldið á hið amríska Enron:

Er alveg útúr myndinni að Séð og heyrt fái einhvern til að lesa textana sína yfir? Svo ekki sé minnst á veiðistangasmiðina…
5 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
þetta er náttlega til háborinnar skammar…af hverju að eyða tíma og peningum í illa gerða hluti? …á fróni er annars sól og sumarylur, grillveislur í hverju horni…og lífið er gott…verður hægt að bjóða ykkur eitthvað í grillveislu í sumar? á ekkert að fara í heim-sókn?
frábært frábært…..
og pretty nice in Mogginn today, ha?!
Já sá þig Andrés í Mogganum – það er meira sem þú ert með sambönd. Annars er ég alveg sammála þér samgöngur eru gulls ígildi – Nú á víst að fara að taka upp nýtt leiðarkerfi strætó sem hefur á síðum fjölmiðla fengið viðurnefnið ,,farþegafjandsamlegt”
En hvað segið þið Andrés og Unnustan Rúna – Á að vera júróvisíón partý – Ég er á leiðinni til Berlínar núna barasta í vikunni.
kv Magga Huga
Hverjum er svona illa við ykkur að senda Fáséð og fáheyrt í hverri viku á ykkur, hvað gerðuð þið!!??
Þar að auki er þetta heldur leiðinleg íslenska að segja að maðurinn sé “”búinn” að kaupa sér eitthvað. Eðlilegra er að segja að Einar hafi (með viðeigandi greini) keypt sér veiðistöng. Ég ætla heim til að hlusta á læknirinn hjala.