Gælunöfn

13 May 2005 | Rúna

Við tölum um okkar ástsælu skólafélaga þegar við erum í skólanum, og við tölum líka um þau þegar við erum heima. Strax í haust háði það okkur svolítið að vita ekki hvað allt þetta fólk héti, þar sem kennararnir ávarpa okkur með eftirnöfnum, svo við fórum fljótt að þróa með okkur eigið nafnakerfi. Hér er sýnishorn af gælunöfnunum sem við höfum fundið upp:

Sláninn
Hliðartaglið
Tuðran
Fáráðurinn
Rauðhærði vinur Fáráðsins
Blaðurskjóðan
Bleika
Maórinn
Fuglinn
Heimspekingurinn
Lára litla
Barnið
Dvergurinn
Dúpló
Ballerínan
Sjálfsmorðinginn
Gleiða
Strekkta
Teina
Væmna
Rangeygða

Annað í stöðunni væri náttúrulega að læra nöfn þessa fólks, en það væri bara ekki jafn gaman.

1 Comment

  1. kein betreff said on 6 Jul 2005 at 20:48:

    [...] a alla samnemendur okkar brjálaða. Stress fyrirfinnst ekki hjá okkur, en æsingurinn í Tuðrunni, Hliðartaglinu og Dínó ætla okkur lifandi að drepa! Engar athu [...]

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.