Túlkurinn

16 May 2005 | Rúna

Það kemur nú ekki oft fyrir að ég læt ókunnugt fólk kippa mér úr jafnvægi, en það kom nú samt fyrir í gær. Við vorum orðin svo þreytt á skruddunum að við ákváðum að skreppa í bíó í grenndinni. Í Berlín eru sætin númeruð og það þarf yfirleitt engan stjarneðlisfræðing til að finna út hvar maður á að tylla sér. Hélt ég…

Meðan auglýsingar stóðu yfir kom kona til mín og sagði að ég væri í hennar sæti, sæti númer tólf. „Nei“, sagði ég, „þetta er sæti númer ellefu. Tólf er hérna við hliðina á mér“. Ég viðurkenni að númerakerfið gæti verið aðeins skýrara, því það var ekki alveg ljóst hvort talan ætti við sætið hægra megin eða vinstra megin, en þar sem við sátum næstum við enda vorum við alveg klár á málunum. Konan gerði sig ánægða með þetta og settist við hliðina á mér.

Þá kom einhver leiðindafjölskylda, sem átti sætin hinumegin við konuna, og sagði við hana að hún væri í vitlausu sæti, og þar með við líka. Segir þá ekki konan við fjölskylduföðurinn: „Ég hélt það líka, en ÞAU sögðu mér að sitjast hér“. Svo sneri hún sér að mér og sagði: „Það lítur út fyrir að ég hafi haft rétt fyrir mér, ekki þú!“ Og þetta margendurtók hún, en þar sem ég nennti ekki að fara að rífast reyndi ég bara að horfa í aðra átt.

Í þrjósku minni stóð ég upp, fullvissaði mig um að þetta væru réttu sætin og sagði svo við allt pakkið að ÉG væri víst í sæti ellefu. Þá sneri konan sér að fjölskylduföðurnum og sagði: „Ég hélt það líka“ og brosti til mín.

Hún var greinilega búin að sættast algjörlega við mig, því eftir að myndin byrjaði hallaði hún sér upp að mér og bað mig um að þýða einhver orð fyrir hana. Hún var nefnilega verri í þýsku en ég. Þetta fannst mér sérstaklega kaldhæðnislegt, þar sem við vorum á mynd um túlk: The Interpreter.

Að sjálfsögðu hefndi ég mín á þessari konu sem kom mér í uppnám. Ég smjattaði nefnilega á poppkorninu mínu óvenju mikið alla myndina. Og hefndin var sæt.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.