Snýtt

19 May 2005 | Andrés

Í Þýskalandi er ekki sogið uppí nefið — hér snýtir fólk sér. Fyrir vikið teljast snýtingar sæmilega raffínéraðar (enginn kippir sér t.d. upp við snýtingu við matarborðið) og allir er með Tempopakka í rassvasanum. Önnur afleiðing kemur í ljós núna í sumarbyrjun, þegar einhver nefrennslispest virðist vera að ganga í skólanum. Snýtikúltúrinn hefur það nefnilega í för með sér að maður missir nokkrar mínútur úr hverjum tíma.

Tvisvar, þrisvar í kennslustund rífur einhver upp snýtuklút og ber upp að nefinu. Óháð því hvort um sé að ræða heljarinnar karlmann eða stúlkupísl drynur svo í stofunni að ekkert heyrist í kennaranum. Allir láta einsog þeir heyri ekki í snýtinu, en að því loknu segir einhver við þann sem var að tala (og þar með yfirgnæfður) að hann hafi „akustisch nicht verstanden“ — þjáist sumsé af hljóðrænum misskilningi.

Á meðan á öllu þessu stendur situr íslenski dóninn útí horni og sýgur uppí nefið, en þó í hljóði.

1 Comment

  1. sun said on 19 May 2005 at 15:02:

    Ekki lúffa fyrir snýtuklútunum!!
    *sjúg* *sjúg*

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.