Annar í Eurovision tvö

22 May 2005 | Rúna

Í dag eru nákvæmlega 11 mánuðir síðan við fluttum til Berlínar, ótrúlegt en satt. Enn ótrúlegra þykir mér að í alla þessa 335 daga höfum við aldrei pantað okkur heimsenda pizzu, ekki fyrr en í dag. Og óskaplega rann hún ljúflega niður. Barbeque-sósa, salami, laukur og kjúklingur er greinilega allt sem maður þarf til að glíma við daginn eftir Eurovision.

Því það er að minnsta kosti tvennt sem maður getur gengið út frá í sambandi við Eurovision. Í fyrsta lagi hefur hún timburmenn í för með sér. Í öðru lagi er hægt að stóla á Íslendinga þegar kemur að stigagjöf.

3 Comments

  1. sun said on 22 May 2005 at 23:36:

    úff já timburmennirnir, eru enn hjá mér, thridja daginn í röd. og já ég eyddi 400 kalli í ad gefa vinum mínum nordmönnum fullt hús stiga…..

  2. eliasingi said on 23 May 2005 at 16:37:

    Já, ég pantaði líka pizzu heim í fyrsta skiptið í gær síðan ég kom til Þýskalands en það er nú bara rúmlega mánuður síðan ég kom þannig að það er kannski ekkert svo merkilegt. Góð var pizzan þó !

  3. ihs says said on 23 May 2005 at 19:55:

    Kirkjuklukkur hallgrímskirkju eru fallegar að Hryngja þær boða
    fagnaðar erendið englar guðs Klukknaspilin á sunnudögum er svo
    hátíðlegt kirkjuklukkurnar hafa leyfi til að hryngja.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.