Svöngu börnin í háskólanum
25 May 2005 | Andrés
Nýverið var mötuneyti skólans okkar rækilega endurbætt, að því er virðist til hagræðingar. Einhver launakostnaður hlýtur að minnsta kosti að sparast, því eftir breytingar þurfum við sjálf að skófla matnum á diskana okkar. Í hádeginu fór ég dálitlu offari í að skammta mér kartöflumús og súrkál, þannig að ég neyddist til að leifa slatta. Samviskubitið hvarf hinsvegar einsog dögg fyrir sólu þegar ég var búinn að ganga frá bakkanum á þvottavélarfæribandið. Á leiðinni út mætti ég skítugum kalli sem lyktaði af hlandi og úldnum bjór (heimilislaus róni, ef ég verð að giska) sem arkaði beinustu leið að bandinu og greip diskinn minn. Hann raðaði svo í sig volgu meðlætinu mínu af bestu lyst.
Nú þarf ég ekki lengur að hafa áhyggjur af svöngu börnunum í Afríku!
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.