Nýlendan Ísland

29 May 2005 | Rúna

Við lentum í einum ótrúlegustu umræðum sem ég hef upplifað í gærkvöldi. Við vorum í partíi hjá danskri stelpu sem er með okkur á þýskunámskeiði, og hún var alveg sérstaklega ánægð með að fá Íslendinga heim til sín. Hér eru brot af umræðunum:

Danska: Það er nú alveg staðreynd að Grænland og Ísland eru órjúfanlegur hluti af Danmörku. Tengslin milli þessara þjóða eru mjög sterk.
Við: Já, finnst þér það?

Danska: Hvernig er það, er herskylda á Íslandi?
Við: Nei, við höfum engan her.
Danska: Nei, en ég hélt kannski að þið væruð send til Danmerkur
Við: Nei, nei, við höfum ekkert með danska herinn að gera.

Danska: Nú á krónprins Danmerkur von á barni og það verður að breyta stjórnarskránni ef stúlka fæðist og hún á að verða drottning. Það verður kosið um það í Danmörku. Verður líka kosið um það í Íslandi?
Við: Nei, við höfum okkar eigin stjórnarskrá.
Danska: En ég veit að það verður kosið á Grænlandi.
Við: Já, Grænland tilheyrir Danmörku.
Danska: Það gerir Ísland líka.
Við: Nei, Ísland er sjálfstætt ríki.
Danska: Já, já, en Danmörk ræður samt að hluta til yfir Íslandi.
Við: Nei, alls ekki. Ísland hefur ekki haft nein tengsl við Danmörku í meira en 60 ár.
Danska: Já, já, en Ísland tilheyrir samt faktískt Danmörku.
Við: Nei, Ísland er sjálfstætt ríki.
Danska: Já, já, en …
Við: Nei, ekkert „en“. Ísland er algjörlega sjálfstætt og fullvalda ríki og Danmörk hefur ekkert um það að segja.
Danska: Já, já, akkúrat.

Eftir þetta samtal hunsaði sú danska okkur það sem eftir var kvöldsins. Hún hefur líklega ekki þorað að tala meira við þessa brjáluðu, þjóðernissinnuðu nýlendubúa sem vildu ekki horfast í augu við raunveruleikann.

4 Comments

  1. Bjassi enn said on 30 May 2005 at 09:55:

    Hún hefur bara haldið að þið væruð færeysk; voruð þig að tala eitthvað skrýtilega? Eða að þið væruð frá dönsku nýlendunni á Jómfrúreyjum — voruð þið kannski í strápilsum?

  2. Anna said on 30 May 2005 at 12:15:

    Heh…velkomin í klúbbinn!
    Hér í Hollandi er ég reglulega spurd ad thessu sama og rekur fólk yfirleitt upp stór augu er madur fraedir thad um ad Ísland sé sjálfstaett og fullburda ríki.
    Madur spyr sig hvort nokkud sé búid ad uppfaera sögubaekurnar sídan fyrir 60 árum sídan..

  3. Ágústa said on 30 May 2005 at 12:45:

    Bwahahaha … mér finnst þetta bilað fyndið!

  4. Brynwulf Von Essling said on 15 Jun 2005 at 09:05:

    Í rauninni ætti að vera frjálst skotleyfi á Dani á Íslandi og Norðmenn líka.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.