Archives for June 2005

Hákarl!

30 June 2005 | molar | 2 Comments

Í gær bauð sómadrengurinn Eirík okkur hjúunum (og fleirum) uppá íslenskan hátíðarmat — hangilæri með viðeigandi meðlæti. Til að kynda undir mannskapnum var þar að auki hákarl á boðstólnum. Ég ákvað að láta verða af því sem aldrei áður hefur gerst og fékk mér kæstan bita í fyrsta sinn. Mér að óvörum þótti mér illa [...]

Read ‘Hákarl!’

Ferðasaga

28 June 2005 | molar | 2 Comments

Þrátt fyrir að vekjaraklukkan rifi okkur upp fyrir allar aldir föstudagsmorguninn síðasta áttum við ekkert mjög erfitt með að drífa okkur fram úr. Við vorum nefnilega að fara að fljúga til London eftir örfáa klukkutíma. Meðan Andrés skellti sér í sturtu setti ég „London Calling“ á fóninn, þótt það sé örugglega það klénasta sem hægt [...]

Read ‘Ferðasaga’

Þorpið okkar

28 June 2005 | molar | No Comments

Liðinni helgi vörðum við á breskri grundu. Megintilgangur ferðarinnar var að heimsækja Gígju, vinkonu Rúnu, sem býr sunnan Lundúna. Á leiðinni til hennar áttum við dagsstund í stórborginni, sem reyndist vera hin undarlegasta upplifun. Mér ofbauð nefnilega mannmergðin, þrengslin, kraðakið, skíturinn og hávaðinn. Nú er ekki svo að skilja að við höfum skotist frá Stokkseyri [...]

Read ‘Þorpið okkar’

Um þetta leyti fyrir ári…

22 June 2005 | molar | 2 Comments

Andrés er alltaf að stríða mér því ég byrja setningar svo oft á: „Um þetta leyti fyrir ári…“ og kem svo með atburði sem hann er löngu búinn að gleyma. En í dag finnst mér ég hafa fullan rétt á slíkum setningum því um þetta leyti fyrir ári vorum við að burðast með tvær ferðatöskur [...]

Read ‘Um þetta leyti fyrir ári…’

Jibbíjið

18 June 2005 | molar | 4 Comments

Fyrir þá sem áhuga hafa: hér eru myndir af grillveislu Íslendinga í tilefni 17. júní. Sendiherrann sýndi meiraðsegja lit og mætti með bjórkassa.

Read ‘Jibbíjið’

Hæ, hó, jibbí?

17 June 2005 | molar | 2 Comments

Þjóðverjar eru bara bölvaðir barbarar! Þeir taka 17. júní ekki alvarlegar en svo, að maður þarf að mæta í skólann!

Read ‘Hæ, hó, jibbí?’

Súperstar

15 June 2005 | molar | 4 Comments

Ef nágrönnum okkar finnst þeir knúnir til að spila tónlist það hátt að allir íbúar við húsagarðinn heyri, mætti ég þá biðja um eitthvað annað en helvítis sándtrakkið úr Jesus Christ Superstar?

Read ‘Súperstar’

Die Eltern

14 June 2005 | molar | 2 Comments

Við eigum aldeilis skemmtilega helgi að baki, því henni eyddum við með mömmu minni og pabba. Þau flugu til Berlínar á fimmtudaginn og fóru í gær. Ég hafði ekki séð þau í heilt ár, sem er lengsta foreldralausa tímabilið á minni 25 ára ævi, og iðaði því alveg í skinninu að hitta þau. Foreldrunum var [...]

Read ‘Die Eltern’

Meistari

7 June 2005 | molar | 6 Comments

Ef ég myndi geta skapað mitt eigið mastersnám væri það á áhugaverðu sviði í fínum skóla með góðu mötuneyti og tæki eitt ár. Ég var því ansi spennt þegar ég sá hið fullkomna mastersnám auglýst við skólann minn í apríl. Það heitir European Master in Intercultural Education, fer fram á ensku og þýsku, og fjallar, [...]

Read ‘Meistari’

Myndir

4 June 2005 | molar | 4 Comments

Jæja, sjáum nú hvernig okkur gengur að birta myndir á síðunni. Úrvalið er heldur fátæklegt, en eykst vonandi á næstunni.

Read ‘Myndir’

Viltu eld?

3 June 2005 | molar | No Comments

Fyrst ég er búinn að minnast á nákvæmu jógúrtina má ég til með að koma með aðra „mikið rosalega eru Þjóðverjar nákvæmir“-dæmisögu. En svo lofa ég að hætta klisjusögum… Í gær lá eldspýtnapakkinn sem meðfylgjandi mynd er af fyrir framan mig á kaffihúsi. Hvað ætli séu margir Pólverjar í vinnu hjá talningadeild verksmiðjunnar?

Read ‘Viltu eld?’

Uppá hár!

2 June 2005 | molar | 1 Comment

Þýskir neytendur hljóta að vera nokkuð kröfuharður hópur, að minnsta kosti ef maður tekur mið af innihaldslýsingu morgunmatarins okkar. Í dag prófuðum við eplakökujógúrt, sem er nýkomin á markað, og þegar við renndum augunum yfir ytra byrði umbúðanna (til að njóta huggulegra myndskreytinganna) stóð stórum stöfum: 2,7% kökubitar, 5,2% epli, 3,5% fita Maður er svosem [...]

Read ‘Uppá hár!’