Uppá hár!
2 June 2005 | Andrés
Þýskir neytendur hljóta að vera nokkuð kröfuharður hópur, að minnsta kosti ef maður tekur mið af innihaldslýsingu morgunmatarins okkar. Í dag prófuðum við eplakökujógúrt, sem er nýkomin á markað, og þegar við renndum augunum yfir ytra byrði umbúðanna (til að njóta huggulegra myndskreytinganna) stóð stórum stöfum:
2,7% kökubitar, 5,2% epli, 3,5% fita
Maður er svosem vanur því að sjá fitu og eggjahvítu útlistaða með tveimur marktækum stöfum, en nákvæmt hlutfall kökubita og epla getur varla verið svo óskaplega mikilvægt.
Rétt er að bæta við að þótt eplakökujógúrt hljómi ekki vel, þá bragðast hún ljómandi.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Allt er nú til…Reyndar verð ég að segja mér finnst jógúrt með eplakökubitum soldið langt gengið….hvernig smakkaðist? Veit ekki hvort mér finnst það girnilegt… En alla vegna flott nýja lúkkið á síðunni ;-) Bestu kveðjur úr skóginum svarta, mabbz