Meistari

7 June 2005 | Rúna

Ef ég myndi geta skapað mitt eigið mastersnám væri það á áhugaverðu sviði í fínum skóla með góðu mötuneyti og tæki eitt ár. Ég var því ansi spennt þegar ég sá hið fullkomna mastersnám auglýst við skólann minn í apríl. Það heitir European Master in Intercultural Education, fer fram á ensku og þýsku, og fjallar, eins og nafnið gefur til kynna, um hvernig hægt er að kenna börnum að umgangast einstaklinga af ólíkum uppruna. Þetta snýst ekki aðeins um nýbúakennslu heldur einnig um að nota lýðræðislega kennsluhætti í skólastofunni og stuðla að minni fordómum og auknu umburðarlyndi.

Stór orð þurfa stóra umsókn, svo ég settist niður við að skrifa umsókn með hjálp hennar Marie, vinkonu okkar, sem sá til þess að þýskan var óaðfinnanleg. Svo sendi ég með gommu af skólavottorðum og meðmælum og krossaði fingur.

Fyrir rúmri viku, á heitasta degi ársins til þessa, mætti ég svo sveitt í viðtal og skriflegt próf ásamt öðrum umsækjendum. Mér til mikillar furðu sóttu aðeins þrír Þjóðverjar um en hinir umsækjendurnir voru frá öllum heimshornum. Ég eyddi svo öllum deginum með þessum mjög fjölþjóðlega hópi og leist bara vel á.

Eins og orðið er hefð fyrir í sambandi okkar Andrésar var hann maðurinn sem í ótakmarkaðri bjartsýni efaðist aldrei um að ég kæmist inn meðan ég beið skjálfandi eftir tölvupósti um hvort ég hlyti inngöngu eða ekki. Hann keypti meira að segja freyðivínsflösku sem stóð óhreyfð inni í ísskáp síðustu vikuna.

Í dag læddist svo lítill tölvupóstur til mín. „Heiðraða Frú Guðmarsdóttir, það gleður mig að tilkynna yður að þér hafið fengið inngöngu í European Master of Intercultural Education“. Og það var mikið fjör þegar freyðivínið var tekið upp við hátíðlega athöfn í eldhúsinu okkar í kvöld.

6 Comments

  1. sun said on 8 Jun 2005 at 01:54:

    Ædi!!!! Til hamingju elsku Rúna:) Er farin ad hlakka mikid til ad koma til ykkar og hennar Berlínar minnar;)

  2. Dagný said on 8 Jun 2005 at 14:22:

    Vá þetta er ÆÐISLEGT. Innilega til hamingju elsku Rúna mín

  3. Ragnhildur said on 8 Jun 2005 at 16:17:

    Frábært!! Til hamingju!!!

  4. Hrönn said on 8 Jun 2005 at 19:18:

    Glæsilegt!! Til hamingju með það! Þetta hjómar rosalega spennandi nám, þú átt eftir að brillera í þessu eins og öllu öðru!!
    Kv. Hrönn

  5. Gígja said on 9 Jun 2005 at 01:04:

    Æði gæði!!!Frábært. Innilega til hamingju, vissi nú alveg að þú kæmist inn. Er greinilega jafn bjartsýn og Andrés. Hlakka til að fá ykkur í heimsókn þann 24 Júní. Verðum að halda upp á þetta þá, skal sjá til þess að við eigum kælt kampavín til að sötra á svölunum í blíðviðrinu hér. ‘Astarkveðja Gígja

  6. Maggamegalúf said on 13 Jun 2005 at 22:20:

    Til Hamingju!!!
    kv magga

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.