Die Eltern
14 June 2005 | Rúna
Við eigum aldeilis skemmtilega helgi að baki, því henni eyddum við með mömmu minni og pabba. Þau flugu til Berlínar á fimmtudaginn og fóru í gær. Ég hafði ekki séð þau í heilt ár, sem er lengsta foreldralausa tímabilið á minni 25 ára ævi, og iðaði því alveg í skinninu að hitta þau.
Foreldrunum var þvælt um borgina þvera og endilanga, og meira að segja út fyrir hana, því einum deginum eyddum við í nágrannaborginni Potsdam. Þar skoðuðum við höllina Cecilienhof þar sem fulltrúar Bandaríkjamanna, Sovétmanna og Breta teiknuðu nokkur strik á landakort fyrir réttum sextíu árum og skiptu Þýskalandi þar með í tvennt.
Ég bar mig nú hálf aumlega þegar ég sá á eftir mömmu og pabba á flugvellinum, en var minnt á að það væru bara tveir mánuðir þangað til við Andrés komum í þriggja vikna frí til Íslands. Og mikið skelfing er ég nú farin að hlakka til að hitta ykkur öll!
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Hlakka til ad hitta ykkur líka:)
DOM ? ;)
ooh, ég sakna afa og ömmu :/