Um þetta leyti fyrir ári…
22 June 2005 | Rúna
Andrés er alltaf að stríða mér því ég byrja setningar svo oft á: „Um þetta leyti fyrir ári…“ og kem svo með atburði sem hann er löngu búinn að gleyma. En í dag finnst mér ég hafa fullan rétt á slíkum setningum því um þetta leyti fyrir ári vorum við að burðast með tvær ferðatöskur frá Schönefeld flugvelli inn í Berlínarborg. Við vorum að hefja dvöl okkar í Berlín. Ótrúlegt en satt, í dag er ár síðan við komum.
Ég held að mér hafi aldrei nokkurn tíma þótt neitt ár jafn fljótt að líða og þetta. Og samt hefur svo mikið gerst. Ég lærði að borða súrar gúrkur úr krukku og frekjast í skólakerfinu. Andrés er farinn að kynna sig í símann sem „Herr Jónsson am Apparat“ og borðar blóðmörsúpu með bestu lyst. Við erum búin að taka próf, skrifa ritgerðir og halda fyrirlestra af fullum krafti og upplifa sumar, vetur, vor og haust í borginni okkar.
Nú er bara spurning hvernig ber að fagna svona merkilegum degi. Fara á Schönefeld með blómvönd og drekka bjór á barnum þar?
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Það er samt satt, þú hefur mjög gaman af að rifja upp “þetta leyti fyrir ári síðan” :)
frábær hugmynd med blómin og bjórinn. til lukku med daginn :)