Hákarl!
30 June 2005 | Andrés
Í gær bauð sómadrengurinn Eirík okkur hjúunum (og fleirum) uppá íslenskan hátíðarmat — hangilæri með viðeigandi meðlæti. Til að kynda undir mannskapnum var þar að auki hákarl á boðstólnum. Ég ákvað að láta verða af því sem aldrei áður hefur gerst og fékk mér kæstan bita í fyrsta sinn. Mér að óvörum þótti mér illa lyktandi, slímkenndur köggullinn sæmilega bragðgóður (svona einsog skata, svo-vont-að-það-er-eiginlega-komið-hringinn-góður). Þegar yfir lauk var ég búinn að hesthúsa hálfri krukku.
Það er nú dáldill sjarmi yfir því að uppgötva hákarl í íslensku jólahlaðborði í Berlín í júnílok, ekki satt?
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Hehe, lenti í svipuðu hér í hinni frjálzu um árið. Gat ekki látið það segjast að íslendingurinn borðaði ekki hákarl, eftir að allir hinir voru búnir að smakka…og það sem meira var, drakk líka brennivín sem mér hafði heldur aldrei þótt aðlaðandi drykkur, en e-n veginn passar þetta saman ;-)
hann Eirik er nú meiri rugludallurinn:) ég fór einmitt á thorrablót hjá honum í október (eda var thad nóvember, kemur á sama stad nidur) híhí…