Archives for July 2005
Langlokur. Hvernig þýskir titlar eru yfirleitt lengri í annan endann.
28 July 2005 | molar | No Comments
Það er löngu vitað að þýskir fræðimenn hafa gaman af því að hafa undirtitla ritgerða og bóka lengri en titilinn sjálfan. Maður gæti til dæmis teygt sig uppí hillu og sótt nýlega bók eftir Thomas Becker, „Die Hegemonie der Moderne. Zur Neubestimmung politischer Romantik im Naturrecht Kants und Hegels“. Á labbitúr í gær gengum við [...]
Read ‘Langlokur. Hvernig þýskir titlar eru yfirleitt lengri í annan endann.’
Mislukkaður hjólatúr og enn verri grillveisla
27 July 2005 | molar | 7 Comments
Nú erum við loksins bæði komin á hjól. Andrés keypti sitt fyrir nokkrum mánuðum en það var ekki fyrr en um síðustu helgi að við römbuðum á fínt, notað hjól handa mér. Þegar Elías, vinur okkar, hringdi í okkur og bauð okkur í grillveislu í nálægum almenningsgarði fannst okkur tækifærið kjörið til að prófa að [...]
Read ‘Mislukkaður hjólatúr og enn verri grillveisla’
Sumarfrí
27 July 2005 | molar | 2 Comments
Jæja, þá eru niðurstöður allra prófa komnar í hús (önninni lauk í júníbyrjun) og við höfum staðist þetta árið stóráfallalaust. Þá eru tvær afslöppunarvikur framundan áður en við komum heim í sumarfrí. Fyrir áhugasama er rétt að taka fram að við verðum á svæðinu 7. til 29. ágúst, en hápunktur ferðarinnar verður kveðjupartí Grettisgötunnar laugardaginn [...]
Himnesk markaðssetning
25 July 2005 | molar | 1 Comment
Síðustu dagana hafa lestarstöðvar borgarinnar fyllst af auglýsingum úr óvæntri átt: Þessum plakötum er ætlað að höfða til kynslóðarinnar sem kynnist ástinni gegnum netið. Sömu leið hljóti að vera hægt að virkja til að elska himnaföðurinn. Hann má nú eiga það kallinn, að hann er með á nótunum…
Ekki fallin!
16 July 2005 | molar | 3 Comments
Ég hef fundið köllun mína í lífinu. Ég ætla að verða „psycho-linguist“. Það kom nefnilega á daginn að ég stóðst prófið sem ég tók fyrir mistök í því fagi á miðvikudaginn.
Fallin. Skítfallin!
13 July 2005 | molar | 1 Comment
Í þessari viku tökum við Andrés fjögur próf á þremur dögum. Ég hafði ekki miklar áhyggjur af þremur þeirra en var ekki viss með próf í inngangskúrsi í málvísindum, sem við tókum í dag. Lesefnið var voðalega mikið og tímarnir margir hverjir gagnslausir eftir lélega fyrirlestra nemenda svo ég bjó mig undir að fá enga [...]
Tyrkinn
8 July 2005 | molar | 5 Comments
Í kvöld splæstum við í leigubíl. Bílstjórinn var (samkvæmt spjalli við hann) frekar nýfluttur til Þýskalands frá Tyrklandi. Hann hafði nokkuð ákveðnar skoðanir um sprengjurnar í London. Já, svona er þetta. Þeir spáðu svosem ekkert í það hvort konur eða börn dóu í Afganistan. Nú þurfa þeir bara að finna hvernig þetta er. Mér þykir [...]
ÓL-2016-vonbrigðin
7 July 2005 | molar | 1 Comment
Í þýskum morgunfréttatíma fengum við að heyra þær sorgarfréttir að þar sem Lundúnir hefðu fengið Ólympíuleikana 2012 væri ljóst að Berlín fengi ekki að halda þá 2016, einsog menn höfðu gert sér vonir um. Al-kaída-Europe, my ass — þetta var árás berlínskra öfgasportista á samgöngukerfi Lundúna!
Þrammi flytur
6 July 2005 | molar | No Comments
Okkur bárust gleðitíðindi í gær: Gaurinn í íbúðinni fyrir ofan okkur (sem þrammar tímunum saman fram og aftur um þunn viðargólfin og ryksugar stundum klukkan fimm að aðfaranótt þriðjudags, eftir að hafa spilað tónlist og fært húsgögn til tvö) er fluttur! Þetta þóttu okkur svo góðar fréttir að við gleymdum eitt augnablik prófstressinu sem virðist [...]