Þrammi flytur
6 July 2005 | Andrés
Okkur bárust gleðitíðindi í gær: Gaurinn í íbúðinni fyrir ofan okkur (sem þrammar tímunum saman fram og aftur um þunn viðargólfin og ryksugar stundum klukkan fimm að aðfaranótt þriðjudags, eftir að hafa spilað tónlist og fært húsgögn til tvö) er fluttur! Þetta þóttu okkur svo góðar fréttir að við gleymdum eitt augnablik prófstressinu sem virðist ætla að gera alla samnemendur okkar brjálaða. Stress fyrirfinnst ekki hjá okkur, en æsingurinn í Tuðrunni, Hliðartaglinu og Dínó ætla okkur lifandi að drepa!
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.