Tyrkinn
8 July 2005 | Andrés
Í kvöld splæstum við í leigubíl. Bílstjórinn var (samkvæmt spjalli við hann) frekar nýfluttur til Þýskalands frá Tyrklandi. Hann hafði nokkuð ákveðnar skoðanir um sprengjurnar í London.
Já, svona er þetta. Þeir spáðu svosem ekkert í það hvort konur eða börn dóu í Afganistan. Nú þurfa þeir bara að finna hvernig þetta er. Mér þykir leiðinlegt að segja þetta, en þeir [sem réðust inn í Afganistan] þurfa bara að finna hvernig þetta er.
Þótt bílstjórinn hafi kannski verið dáldið harðorður, bauð hann þó uppá nýtt sjónarmið. Sjónarmið sem við fáum sjaldan að heyra og erum jafnvel sjaldnar sammála…
5 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Fólkið sem réðist inn í Afganistan er ekki sama fólkið og fann mest fyrir sprengingunum í London
Hver er ábyrgur fyrir innrásinni í Afganistan og Írak? Ég meina ef við búum í lýðræði þar sem lýðurinn ræður, þá er það náttúrulega lýðurinn sem ber ábyrgð á þessu !
Ég er algerlega sammála manninum, vesturveldin eru búin að vera að nauðga hinum svokallaða þriðja heimi áratugum saman og svo er vælt yfir terrorisma og morðæði um leið og að fólkið byrjar að svara fyrir sig.
Einhver benti á að 30-40 manns í valnum væri nú
bara venjulegur dagur í Írak …
Það er allt saman satt og gott og blessað, en það réttlætir ekki að neinu leyti þessa árás í London á fimmtudaginn. Two wrongs don´t make a right! Auk þess eru allar svona pælingar um hvort að við hérna í london “höfum þurft að finna hvernig þetta var” nokkuð pointless, og lætur fólk missa sjónar á aðalatriðinu, sem er að reyna að koma því til leiðar að ekki verði brugðist við þessum árásum með innrás inn í nýtt land, fullt af saklausu fólki, heldur berjast fyrir friði með friði!