Mislukkaður hjólatúr og enn verri grillveisla

27 July 2005 | Rúna

Nú erum við loksins bæði komin á hjól. Andrés keypti sitt fyrir nokkrum mánuðum en það var ekki fyrr en um síðustu helgi að við römbuðum á fínt, notað hjól handa mér. Þegar Elías, vinur okkar, hringdi í okkur og bauð okkur í grillveislu í nálægum almenningsgarði fannst okkur tækifærið kjörið til að prófa að hjóla saman.

Sólin skein glatt og heitt var í veðri þegar við komum í umsaminn almenningsgarð. Við breiddum úr teppi, skelltum kolum í grillið og létum fara vel um okkur. En eins og hendi væri veifað byrjuðu dökk ský að þekja himininn og í fjarska sáum við blossa af eldingu. Elías ákvað að keyra heim en við þáðum ekki far þar sem við vorum hjólreiðagarpar.

Ég hef sjaldan upplifað jafnmikinn skúr og þegar við reyndum að hjóla heim til Elíasar en sáum varla út úr augunum. Á endanum gáfumst við upp, læstum hjólunum upp við tré og hírðumst undir húsvegg eins og blautir hundar þangað til Elías kom og sótti okkur.

Hjólaprufan var dauðadæmd en hamborgaraátið reddaðist þar sem við slógum grillveislunni upp í inniveislu.

7 Comments

  1. Svenni said on 28 Jul 2005 at 00:45:

    Var þetta verkfæraskúr eða bílskúr?

  2. Ragnhildur said on 28 Jul 2005 at 12:40:

    Góður!!! :)

  3. Western Express said on 30 Oct 2007 at 15:59:

    Hi! good work ! You are working in right direction

  4. Merlin said on 10 Nov 2007 at 11:59:

    Hi!,

  5. No_limits said on 10 Nov 2007 at 11:59:

    Hi!,

  6. HOKUeuon said on 31 Oct 2008 at 01:23:

    Best search http://super.noneto.com S5rF8jhd678IKl2710GD
    .

  7. Animal sex video. said on 23 Feb 2009 at 22:38:

    Animal sex….

    Sex with animal. Sex animal. Farm animal sex….

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.