Rúna fer til Narníu
31 August 2005 | Rúna
Á mánudagsmorguninn settist ég upp í flugvél og flaug yfir í hinn heiminn minn. Það er skrýtið að eiga tvo heima. Mér líður stundum eins og börnunum í sögunni um Ljónið, nornina og skápinn sem gátu flakkað milli heimsins síns og Narníu eins og ekkert væri. Þessir tveir heimar mínir eru jafn ólíkir og Narnía og heimur barnanna. Það er til dæmis mjög mikill munur milli Garðsins í norðangarranum og Berlínar í 30 stiga hita og sól.
Eftir fjórtán mánaða dvöl í Berlín var ýmislegt breytt í Reykjavík sem maður þurfti að læra og laga sig að:
- það er komin VIP-röð á 22
- bæði sjónvarpsstöð og dagblað bera nafnið Sirkus, svo ekki sé minnst á skemmtistaðinn
- ekki er hugsanlegt að eiga samræður við nokkra manneskju án þess að leiðarkerfi strætisvagnanna beri á góma
- megavika Dominos heitir nú gígavika og pizzan er 100 kr. dýrari
og svo framvegis..
En auðvitað breytist tiltölulega fátt á fjórtán mánuðum og mér sýnist Ísland alveg geta dafnað ágætlega án þess að við hjónaleysin séum þar. Reykjavík er áfram falleg og bjórinn dýr. En mestu máli skiptir þessi skari af frábærum vinum og vandamönnum sem er svo gott að vita af og enn skemmtilegra að heimsækja.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Heyrðu, vó, ég held þetta sé allt búið að breytast bara síðan ég var heima, fyrir 4 mánuðum!! Og svo er líka ólíver orðinn the new hverfis víst!!
svei mér þá.. ég ætlaði að fara halda ræðu um að við hefðum EKKERT rætt strætó.. en neyddist svo víst til að stroka það út. Velkominn “heim”.