Archives for September 2005

Konur eru frá Venus

30 September 2005 | molar | 6 Comments

Það hefur löngum verið vitað að konur komast ekki með tærnar þar sem karlmenn hafa hælana þegar kemur að ýmsum málum. Gott dæmi um það er sú staðreynd að kvenfólk er gjörsamlega óhæft um að bakka í bílastæði og að leika ýmsar kúnstir með þau farartæki sem fyrir körlunum er hreinn barnaleikur. Nágrannar okkar í [...]

Read ‘Konur eru frá Venus’

Dagar víns og rósa á enda

25 September 2005 | molar | 3 Comments

Eftir tæplega hálfs mánaðar langt ferðalag erum við aftur komin í flatneskjuna í Berlín. Á seinni hlutanum tóku nýjar áherslur við; í stað bjórs, menningar og bjórmenningar helltum við okkur í vínsmökkun við Rín. Eftir dúndurfína dvöl í Zürich var ferðinni fyrst haldið til Freiburgar þar sem við gistum hjá henni Árnýju. Þar fengum við [...]

Read ‘Dagar víns og rósa á enda’

Ferðin hálfnuð

18 September 2005 | molar | 3 Comments

Nú er vika ferðalagsins að baki og annað eins framundan. Að Weimar afgreiddri litum við á Augsburg, Konstanz og Zürich, þar sem við gistum í nótt hjá Hörpu og Guðjóni. Svosem frá mörgu að segja, en einn rauður þráður sem við tókum eftir í þýsku borgunum sem við heimsóttum. Þær eru allar með dellu fyrir [...]

Read ‘Ferðin hálfnuð’

Wir fahr’n fahr’n fahr’n auf der Autobahn

12 September 2005 | molar | 4 Comments

Innan skamms munum við Rúna þjóta eftir rennisléttum hraðbrautum Þýskalands á vit nýrra ævintýra. Næstu dagana ætlum við að rúnta um suðurhluta landsins, til að geta sagst hafa komið til fleiri staða en Berlínar. Fyrsta stopp: Weimar. Meðal frægra sona (hef enn ekki rekist á dóttur) borgarinnar eru Nietzsche, Schopenhauer, Goethe, Schiller, Bach og Wagner. [...]

Read ‘Wir fahr’n fahr’n fahr’n auf der Autobahn’

Bernau brennur

10 September 2005 | molar | 1 Comment

Þegar ég var pjakkur og bjó á sveitabæ hafði ég óskaplega gaman að eldi. Til allrar hamingju fékk ég næga útrás fyrir því, þar sem sífellt féll til spýtnabrak og annað sem þurfti að brenna. Þá féll í minn hlut að hlaða ruslinu upp og bera að því eld. Einna skemmtilegast þótti mér á vorin, [...]

Read ‘Bernau brennur’

Túnfiskur, áll og tuska

10 September 2005 | molar | No Comments

Sushivikan er á enda og við erum útskrifaðir itamae-san, eða sushikokkar. Nú kunnum við að útbúa hrísgrjón sem hanga saman án þess að vera mauksoðin, vefja venjulegar rúllur og inside-out og velja hráefni sem passar vel saman og er litríkt og fallegt í rúllu. Til að fagna útskriftinni fórum við út að borða í gær [...]

Read ‘Túnfiskur, áll og tuska’

Kosningakrot

8 September 2005 | molar | 3 Comments

Innan skamms ganga Þjóðverjar að kjörborðunum og velja sér einhvern í staðinn fyrir Schröder. Í tilefni þessa keppast flokkarnir við að fylla borgina af auglýsingaspjöldum, allt frá A3-blöðum á ljósastaurum uppí frístandandi 30 fermetra ferlíki við stærri götur. Spjöldin eru öll ósköp svipuð — mynd af einhverjum frambjóðanda og meðfylgjandi slagorð. Það sem kannski vekur [...]

Read ‘Kosningakrot’

Síðasta sushimáltíðin

8 September 2005 | molar | No Comments

Í gær skiluðum við þessari máltíð frá okkur: Í kvöld er það svo meistarastykkið: máltíð þar sem réttirnir eru ekki fengnir uppúr matreiðslubók heldur unnir uppúr því sem við höfum lært á undanförnum dögum — það mikið freestyle að við vitum ekki 100% hvað verður á diskunum fyrr en í kvöld.

Read ‘Síðasta sushimáltíðin’

Sushi hið fimmta

7 September 2005 | molar | 4 Comments

Þótt við leiðumst ekki á að borða sushi verður einhæft til lengdar að lýsa því. Förum þó snöggvast í gegnum afrek gærkvöldsins: Í kvöld munum við samkvæmt matseðli snæða fukomati með papriku, ferskju og surimi ásamt gunkamaki með lauki, sesam og kavíar. Þetta er hinsvegar síðasta kvöldið með skipulögðum matseðli — á morgun hrúgum við [...]

Read ‘Sushi hið fimmta’

Sushi IV

6 September 2005 | molar | 2 Comments

Í gær þurftum við á síðustu stundu að bæta laxa- og gúrkurúllum á matseðilinn til að eiga nóg oní Hanni, vinkonu okkar sem boðaði sig í kvöldmatinn á síðustu stundu. Fyrir vikið voru diskarnir býsna veglegir: Í kvöld verður boðið uppá uramaki með avókadó, gúrku og sesamfræjum og gunkamaki með sýrðum rjóma, surimi og kavíar.

Read ‘Sushi IV’

Þriðji í sushi

5 September 2005 | molar | 2 Comments

Svona leit sunnudagsmaturinn út: Á diskinn vinstra meginn hrúguðum við þeim fiski sem við vorum búin að marínera og skera niður, en komum ekki inní rúllur. Í kvöld verður tvennt á boðstólum; hosomaki með avókadó, tómötum, beikoni og graslauki og uramaki með radísum og chili. Sumsé, enginn fiskur í kvöld.

Read ‘Þriðji í sushi’

Sushi-dagar sækja í sig veðrið

4 September 2005 | molar | 5 Comments

Hér er mynd af Rúnu að búa til kvöldmat gærdagsins… …og ein af henni að búa sig undir átið: Í kvöld ætlum við að hafa þríréttað; hoshimaki með reyktum laxi, gúrku, lauk og smurosti; hoshimaki með gúrku, avokado, túnfiski og laxi og uramaki með gulrót, kúrbít og túnfiski. Vonandi lærum við af reynslu gærkvöldsins og [...]

Read ‘Sushi-dagar sækja í sig veðrið’

Sushi-dagar

3 September 2005 | molar | 1 Comment

Í dag hefst afskaplega áhugaverð vika hjá Andrési. Við höfum bæði rosalega gaman að því að borða sushi en nú langar okkur að bæta um betur og þjálfa okkur í listinni að búa það til. Næstu sex daga verður eldhúsið því undirlagt af grjónum og grænmeti, fiski og sojasósu og á þeim sjöunda förum við [...]

Read ‘Sushi-dagar’

Nýnasistinn

1 September 2005 | molar | 4 Comments

Í fjórtán mánuði höfðum við búið í Berlín án þess að lenda í rasistum (fengum reyndar íbúðina útá að vera skandinavar, en látum það liggja milli hluta þar sem við komum vel útúr því). Í gærkvöld skall okkur hinsvegar í fyrsta sinn saman við ekta nýnasista. Þannig var að við sátum tvö saman, einsog turtildúfum [...]

Read ‘Nýnasistinn’