Nýnasistinn
1 September 2005 | Andrés
Í fjórtán mánuði höfðum við búið í Berlín án þess að lenda í rasistum (fengum reyndar íbúðina útá að vera skandinavar, en látum það liggja milli hluta þar sem við komum vel útúr því). Í gærkvöld skall okkur hinsvegar í fyrsta sinn saman við ekta nýnasista.
Þannig var að við sátum tvö saman, einsog turtildúfum sæmir, á garðbekk og deildum hálfvolgum bjór. Spjölluðum saman á ástkæru ylhýru þegar maður gekk framhjá með viðurstyggðarsvip á brá. „Deutschland für Deutsche,“ sagði hann og bætti við „helvítis Pólverjarnir ykkar.“
Ekki nóg með að hann hafi skotið á rangt land, heldur gekkst hann fullkomnlega uppí klisjunni um nýnasistann. Hann var krúnurakaður, í hermannaskóm með stáltá, svörtum gallabuxum og svörtum bol. Til að kóróna allt skrýddist hann flík sem minnti mig á eftirfarandi brandara:
- Af hverju er nýnasistinn með rauð axlabönd?
- Til að halda buxunum uppi!
(Rúna hrópaði á eftir honum að hann væri helvítis fífl, en hann lagði ekki í að slást við hana.)
4 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Já þetta er merkilegur einkennisbúningur hjá þeim, lítur út eins og þeir hafi keypt heilan lager af rauðum axlaböndum, alveg óvart, og þá bara ákveðið að þau væru miklu betri og kúlari en belti.
Kannski eru böndin einhvers konar söbstitjút fyrir rautt band á upphandlegg, samanber litinn. Annars er ekki gott að segja hvað þessir fávitar eru að pæla með þessum brandaralegu axlaböndum.
Kveðjur…
Ég held reyndar að þeir séu með rauð axlabönd af því að bara fífl myndu ganga með rauð axlabönd, einskonar functional darwinismi.
You go, Rúna!!!
Díses, það er auðvitað ekki alveg í lagi með fólk!!!