Sushi-dagar

3 September 2005 | Rúna

Í dag hefst afskaplega áhugaverð vika hjá Andrési. Við höfum bæði rosalega gaman að því að borða sushi en nú langar okkur að bæta um betur og þjálfa okkur í listinni að búa það til. Næstu sex daga verður eldhúsið því undirlagt af grjónum og grænmeti, fiski og sojasósu og á þeim sjöunda förum við á sushi-veitingastað til að athuga hvort við sláum ekki Japanina út.

Og matseðillinn fyrir kvöldið? Temaki-kramarhús með túnfiski, rauðlauk og gúrku og nigiri-kubbar með laxi og avókadó ásamt Tsing-Tao bjór. Við höfum þetta nefnilega bara einfalt til að byrja með…

1 Comment

  1. kein betreff said on 5 Sep 2005 at 18:50:

    [...] sig veðrið Andrés, 04. september 2005, 19:16 Hér er mynd af Rúnu að búa til kvöldmat gærdagsins… …og ein af henni að búa sig undir átið: Í kvöld ætlu [...]

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.