Kosningakrot
8 September 2005 | Andrés
Innan skamms ganga Þjóðverjar að kjörborðunum og velja sér einhvern í staðinn fyrir Schröder. Í tilefni þessa keppast flokkarnir við að fylla borgina af auglýsingaspjöldum, allt frá A3-blöðum á ljósastaurum uppí frístandandi 30 fermetra ferlíki við stærri götur. Spjöldin eru öll ósköp svipuð — mynd af einhverjum frambjóðanda og meðfylgjandi slagorð.
Það sem kannski vekur mesta furðu hjá mér er hversu fáir nýta tækifærið og krota Hitlersskegg á uppáhaldsstjórnmálamanninn sinn, sérstaklega þar sem Berlín er einhver útkrotaðasta borg álfunnar. Þessvegna lifnaði aldeilis yfir mér þegar ég sá Angelu Merkel, helsta andstæðing sitjandi kanslara, með skreytta augasteina:

Krotarinn hefur samt ekki verið með stefnu hakakrossins alveg á hreinu, en gert það næstbesta. Hann bara rispaði báðar týpurnar.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
þú tryggir ekki eftir á….
Æ, Andrés, það er svo lítið sem þarf til að gleðja þig :)
Ja svei, eruð þið bara alveg hætt að sushi-ast?? Hvað er í gangi.. ég sem var að vonast eftir on-line námskeiði í dag…