Bernau brennur

10 September 2005 | Andrés

Þegar ég var pjakkur og bjó á sveitabæ hafði ég óskaplega gaman að eldi. Til allrar hamingju fékk ég næga útrás fyrir því, þar sem sífellt féll til spýtnabrak og annað sem þurfti að brenna. Þá féll í minn hlut að hlaða ruslinu upp og bera að því eld. Einna skemmtilegast þótti mér á vorin, þegar áburðarpoka rak á fjörur mínar í hrönnum. Reykurinn sem þeir gáfu frá sér var svo ótrúlega svartur og lyktin dáldið spennandi.

Þegar við fórum útúr húsi í morgun fyllti þung og óþægileg lykt loftið. Við ræddum hvað þetta gæti verið, hvort væri verið að malbika í nágrenninu eða einhverjir byrjaðir að kynda með kolum. Loksins rann upp fyrir mér að gamall vinur var mættur á svæðið — plastreykurinn.

Það skipti engu hvert við færðum okkur — alltaf fylgdi lyktin okkur, allsstaðar deyfði reykurinn útsýnið. Þegar við komumst aftur í tölvu og litum á fréttavefi kom orsökin í ljós. Kviknað hafði í endurvinnslustöð norðan við Berlín og reykurinn lagðist yfir borgina norðanverða. Það er sama hvaða tölur maður les, þetta er risabruni. 30 þúsund rúmmetrar, 15 þúsund tonn, tveir fótboltavellir að flatarmáli, allt að tíu metra hár haugur. Þar að auki stefnir í að slökkviliðsmennirnir 150 verði nokkra daga að slökkva í bálkestinum.


Einsog sjá má er þetta myndarlegasta bál.

1 Comment

  1. Aðalheiður said on 12 Sep 2005 at 14:43:

    Þetta minnir á þegar dekkjahaugurinn í Hringrás brann á síðasta ári. Magnhlutföllin kannski jöfn miðað við höfðatölu.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.