Wir fahr’n fahr’n fahr’n auf der Autobahn

12 September 2005 | Andrés

Innan skamms munum við Rúna þjóta eftir rennisléttum hraðbrautum Þýskalands á vit nýrra ævintýra. Næstu dagana ætlum við að rúnta um suðurhluta landsins, til að geta sagst hafa komið til fleiri staða en Berlínar. Fyrsta stopp: Weimar. Meðal frægra sona (hef enn ekki rekist á dóttur) borgarinnar eru Nietzsche, Schopenhauer, Goethe, Schiller, Bach og Wagner.

Frægust er borgin samt kannski fyrir að vera fæðingastaður Weimar-lýðveldisins — eins misheppnaðasta ríkis sögunnar (þess sama og gerði Hitler kleift að komast til valda).

4 Comments

  1. sun said on 12 Sep 2005 at 10:51:

    Góða ferð og njótið!
    (mæli enn með bjórlauksúpunni á bjöllustaðnum í Weimar)

  2. Ragnhildur said on 13 Sep 2005 at 10:24:

    Bjórlauksúpu? Það hljómar nú ekki beint vel…

  3. sun said on 13 Sep 2005 at 18:50:

    er mætt til að verja supuna!
    sko þetta er svona tær lauksupa með weimörskum bjor t.d. i staðinn fyrir vatn. svaka ljuffengt:)

  4. Ragnhildur said on 15 Sep 2005 at 14:33:

    já, maður verður víst að prófa þetta einhvern daginn…don´t knock till you´ve tried it og allt það

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.