Ferðin hálfnuð
18 September 2005 | Andrés
Nú er vika ferðalagsins að baki og annað eins framundan. Að Weimar afgreiddri litum við á Augsburg, Konstanz og Zürich, þar sem við gistum í nótt hjá Hörpu og Guðjóni. Svosem frá mörgu að segja, en einn rauður þráður sem við tókum eftir í þýsku borgunum sem við heimsóttum. Þær eru allar með dellu fyrir einhverju úr fortíð sinni. Nefni tvö dæmi:
Weimar lokkaði til sín Goethe þegar hann var ungur að árum og hann bjó þar mestalla ævi. Hann varð meiraðsegja gatnamálastjóri og skrúðgarðyrkjumeistari borgarinnar. Ein af uppáhaldplöntunum hans var ginkótréð (maður getur m.a. skoðað eitt slíkt sem hann gróðursetti sjálfur). Fyrir vikið láta ferðamannasjoppur Weimars sér ekki nægja að selja Goethedrasl, heldur getur maður keypt endalaust af ginkódrasli. Borgin er með tréð gjörsamlega á heilanum.
Augsburg stærir sig af því að vera þriðja mesta Mozartborgin í heimi á eftir Salzburg og Vín (hvernig maður reiknar það út látum við liggja á milli hluta). Mér þótti dáldið langt seilst þegar húsið sem pabbi Wolfgangs Amadeusar fæddist í var rækilega merkt til minja um þann merkisatburð. Þá kom nefnilega í ljós að W.A. Mozart hafði aldrei búið í Augsburg — hann var bara ættaður þaðan (heimsótti borgina reyndar 1763, 1766, 1777, 1781 og 1790, fyrir þá sem hafa áhuga). Samt þótti mér steininn taka úr í gömlu félagsíbúðunum, þar sem utan á einu húsinu stóð: „Hér lifði í sárri fátækt múrarinn Franz Mozart, langafi Wolfgans Amadeusar“. Kannski dáldið tæpt…
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Maður verður að nota það sem maður hefur…þó lítið sé :)
Andrés, þú skuldar mér 850 kall. Mér er ekki skemmt
Mér finnst þetta bara minna svolítið á Ísland og þegar við erum að rekja ættir hinna og þessara manna til Íslands. Ég man nýlegt dæmi og það er danski landsliðsmaðurinn Jon Dahl Tómasson. Afi hans var víst íslendingur. En hvað um það? Hafið það gott hvar sem þið eruð !!