Konur eru frá Venus
30 September 2005 | Rúna
Það hefur löngum verið vitað að konur komast ekki með tærnar þar sem karlmenn hafa hælana þegar kemur að ýmsum málum. Gott dæmi um það er sú staðreynd að kvenfólk er gjörsamlega óhæft um að bakka í bílastæði og að leika ýmsar kúnstir með þau farartæki sem fyrir körlunum er hreinn barnaleikur.
Nágrannar okkar í suðurhluta Þýskalands og Sviss gera sér grein fyrir þessum kynjamun og eru ekki að fara í felur með það eins og margir aðrir. Í ferðalaginu okkar sáum við nefnilega hvernig þeir taka á málunum af einstakri útsjónarsemi. Bílastæðahúsin eru þannig skipulögð að neðsta hæðin er undirlögð af stæðum fyrir fatlaða og konur meðan karlagreyin þurfa að keyra hverja lykkjuna á fætur annarri til að finna stæði á næstu sjö hæðum. Þannig er komið í veg fyrir mikið stress kvenna sem fylgir því að taka skarpar beygjur, taka af stað í brekku o.s.frv. og ég efast ekki um að fyrir vikið sé minna um tjón.
Ég vil þó alls ekki gera lítið úr konum því þær hafa margt til brunns að bera sem karlmönnum reynist erfitt. Við erum til dæmis góðar í að spyrja til vegar og svo erum við í svo góðum tenglsum við tilfinningar okkar.
So true!
PS. Ofangreindur pistill ber vitni um hárbeitta kaldhæðni höfundar og skal ekki tekið of alvarlega.
6 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Já, þetta er mjög rökrétt skýring á þessu en ég var einmitt að velta þessu sama fyrir mér því í Schönhauser Allee Arcaden er svipað í gangi nema að bílastæðin liggja nálægt útgöngum. En veistu stóra sannleikinn um þetta skipulag?
Já, og ég er kominn með heimasíðu aftur og farinn að blogga á fullu. Væruð þið nokkuð til í að skrifa eitt komment svo að mér líði aðeins betur.
Ehhe, já heimasíðan er eliasingi.blogspot.com
búin að fá svissneska útskýringu á þessu með “reserviert fur frauen”. nauðganir og líkamsárásir á konur voru víst mikið vandamál fyrir nokkrum árum svo farið var út í að setja upp sér stæði fyrir konur svo þær þyrftu ekki að ganga langar leiðir í dimmum bílastæðahúsum. Enginn sem hef ég rætt þetta við hefur þó getað sagt mér hvort tíðni nauðgana eða árása hafi breyst með tilkomu þessara sérstæða.
Ég myndi frekar svelta í hel en að spyrja til vegar og ég er sjúklega góð að bakka í stæði … Ó, nei!
oh, hvað ég myndi gefa fyrir að hafa “konustæðahæð” í öllum bílastæðahúsum, ég þoli ekki að leggja í þessum þröngu göngum, orðin ringluð eftir allt hringsólið, sem hjálpar ekki…