Archives for October 2005
Norrænt eðli?
29 October 2005 | molar | 5 Comments
Í skólanum höfum við mikið talað um steríótýpur og fordóma. Samkvæmt þeim er fólkið í Suður-Evrópu hávært og kátt meðan Norður-Evrópubúar eru alvarlegir og lokaðir. Það er svona nokkurs konar lykilsetning í fræðunum að slíkar alhæfingar séu af hinu slæma og að við eigum að dæma út frá einstaklingunum en ekki uppruna. En þegar ég […]
Dylan, kallinn
28 October 2005 | molar | 1 Comment
Á þriðjudaginn gerðum við okkur glaðan dag og fórum á Dylantónleika (þótt ég hafi áður lofað mér að fara ekki aftur á tónleika með gömlum klassíkerum). Einsog við var að búast var fullt hús — og við vorum síður en svo í eldri kantinum. Tónleikarnir voru í það heila nokkuð góðir (getið séð hvaða lög […]
Samnemar
25 October 2005 | molar | 2 Comments
Það er segin saga — hvert sem maður fer eru heimspekinemar steikur. Í málstofu um síðheimspeki Wittgensteins sat ég fyrir aftan gaur sem ekkert glósaði (í hefðbundnum skilningi), heldur skrifaði nótur (tónlistar) allar nítíu mínúturnar…
Nema hann sé einsog farturinn sem hélt óskiljanlegasta heimspekifyrirlestur sem ég hef nokkru sinni heyrt undir því yfirskini að hann liti […]
Hvenær er partí partí?
23 October 2005 | molar | 4 Comments
Er það séríslenskt fyrirbæri að partí sé ekki partí nema góður hluti af gestunum kasti upp, drepist eða geri sig að fífli á einhvern annan hátt?
Ég hélt nefnilega bekkjarpartí í gærkvöldi og það sást ekki vín á nokkrum einasta manni.
Ekki nema á gestgjöfunum.
Endalaus aumingjaskapur
20 October 2005 | molar | 5 Comments
Það virðist ætla að fylgja mér út skólaferilinn hvað samnemendur mínir eru óttalegir aumingjar. Á hverju einasta skólastigi fær að minnsta kosti helmingur bekkjarins hálfgert taugaáfall í byrjun annar yfir öllum kröfunum sem settar eru á okkur. Á meðan sit ég í skólastofunni og langar helst að halda fyrir eyrun til að verða ekki […]
Read ‘Endalaus aumingjaskapur’
Ísland er allsstaðar!
16 October 2005 | molar | 4 Comments
Síðustu viku eyddi ég langt í burtu frá erli stórborgarinnar og honum Andrési mínum, nánar tiltekið í sveitabæ í Niedersachsen. Þar fór nefnilega fram önnur skólavika ársins míns sem mastersnema. Stundataflan var þéttskipuð, kennsla frá morgni til kvölds, og inn á milli snæddum við lífrænt grænmetisfæði sem var misgott.
Eitt af námskeiðunum sem fór þarna fram […]
Passið ykkur
8 October 2005 | molar | 3 Comments
Berlínskur hnakki og buffalóskóuð kærastan hans standa á sporvagnastoppistöð. Nokkrum metrum frá hafa íslenskir Berlínarbúar komið sér upp útsýnisstöð og fylgjast með parinu. Mesta gleði vekur klæðaburður drengsins — glansandi hvítir strigaskór, sýruþvegnar gallabuxur með teygju neðst á buxnaskálmunum, amrískur sportjakki og derhúfa sem snýr nógu mikið til hliðar til að augun njóti sólarljóss. „Hver […]