Passið ykkur
8 October 2005 | Andrés
Berlínskur hnakki og buffalóskóuð kærastan hans standa á sporvagnastoppistöð. Nokkrum metrum frá hafa íslenskir Berlínarbúar komið sér upp útsýnisstöð og fylgjast með parinu. Mesta gleði vekur klæðaburður drengsins — glansandi hvítir strigaskór, sýruþvegnar gallabuxur með teygju neðst á buxnaskálmunum, amrískur sportjakki og derhúfa sem snýr nógu mikið til hliðar til að augun njóti sólarljóss. „Hver hleypir svona fólki inní hverfið okkar,“ velta áhorfendurnir hrokafullir fyrir sér. Þar með er sýningin búin, að því að talið var.
Þegar vagninn leggur að stöðinni kemur í ljós að allir hlutaðeigandi eru á sömu leið. Ekki nóg með það, heldur neyðist helmingur Íslendinganna til að setjast í sama fjögurra sæta hólfið og skæslega parið. Það er samt ekki eins hættulaust og oftast, því þegar ráðist er inná yfirráðasvæði derhúfugaursins bregst hann ókvæða við — setur upp morðingjasvip og hreytir úr sér „Passaðu þig! Þetta eru rosalega dýrir skór sem ég er í!“
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
úff, betra að fara ekki inn í the bus to hnakkville
HA HA HA HA!Berlínskur hnakki og buffalóskóuð kærasta hans, er príma titill á skáldsögu.
Scoooooooter!
Var gaurinn nokkuð í rauðum axlaböndum í stíl við hvítu skóna?