Ísland er allsstaðar!

16 October 2005 | Rúna

Síðustu viku eyddi ég langt í burtu frá erli stórborgarinnar og honum Andrési mínum, nánar tiltekið í sveitabæ í Niedersachsen. Þar fór nefnilega fram önnur skólavika ársins míns sem mastersnema. Stundataflan var þéttskipuð, kennsla frá morgni til kvölds, og inn á milli snæddum við lífrænt grænmetisfæði sem var misgott.

Eitt af námskeiðunum sem fór þarna fram heitir “Opportunities and obstacles for creating a multicultural society in your country” og gengur út á það að hver þátttakandi kemur með einn hlut frá heimalandi sínu og talar í 10 mínútur um hvernig þessi hlutur tengist fjölmenningunni þar. Mjög áhugavert með tilliti til þess að við erum 25 talsins frá 17 ólíkum löndum. Það hefur eflaust enginn átt jafn erfitt með að láta sér detta eitthvað í hug og mér Íslendingnum og ég er svo sannarlega búin að brjóta heilann um þetta mánuðum saman. Upprunalega planið var að ræða um flösku af Tópas-vodkaskotum og gefa svo öllum að smakka, en svo komst ég að því að ég ætti mjög erfitt með að tengja þennan góða drykk við hið fjölmenningarlega Ísland.

Kvöldið fyrir brottför kom Andrés svo með snilldarhugmynd; að tala um Icy-Spicy Leoncie, “Icelands hottest pop secret”, og það sló svo sannarlega í gegn. Eftir að hafa talað um sögu innflytjenda á Íslandi, sem tók ákaflega stuttan tíma, spilaði ég “Sexy Lover-Boy” og “Wrestler” og dreifði um leið myndum af prinsessunni okkar. Umræðurnar í kjölfarið snerust ekki um hvaða úrlausnir gætu verið fyrir hendi, eins og hjá hinum þátttakendunum, heldur um hvort ég væri viss um að Leoncie væri í raun og veru kvenmaður.

Síðasta kvöldið var slegið upp veislu á sveitabænum. Fyrri hlutinn höfðaði ekki sérstaklega til mín þar sem hann snerist um alls kyns hlaupa- og stólaleiki, en seinni hlutinn var frábær. Ekki leið á löngu þar til samnemendur mínir frá öllum heimshornum heimtuðu að ég setti Leoncie á fóninn og svo var tjúttað við “Sexy Lover-Boy”. Tópasdrykkurinn fór ekki heldur til spillis, því ég gekk á milli með staupglös og lét alla taka nokkur skot svo við vorum öll orðin mjög kát. Meira að segja prófessorinn var mjög spenntur fyrir Tópasnum. Ég stóð mig eins og sannur Íslendingur, drakk alla undir borðið og fór síðust að sofa í morgunsárið án þess að ég fyndi mikið á mér.

Í lok vikunnar var komið að því að gera upp skuldir við sveitabæinn. Þá kom í ljós að ég hafi feitasta reikninginn, enda hafði ég drukkið mestan bjór af öllum. Þannig vann ég mér inn einlæga aðdáun samnemenda minna og kennara. Því miður eru engar einingar veittar fyrir frammistöðu af þessu tagi en ég þykist viss um að vikan hafi gefið tóninn fyrir skemmtilegan og árangursríkan vetur.

4 Comments

  1. Ragnhildur litla frænka said on 16 Oct 2005 at 17:26:

    jahérna, að hugsa sér að Leoncie hafi virkilega “keypt þér” vinsældir….gerist ekki á hverjum degi :)

  2. sun said on 17 Oct 2005 at 01:32:

    Thú ert sigurvegari Rúna!

  3. sun said on 17 Oct 2005 at 01:33:

    stjörnufyllibytta kannski?? ;)
    amk stjörnuíslendingur!

    bara pjúra stjörnumanneskja!

    sakna thín/ykkar…..

  4. harpa said on 19 Oct 2005 at 14:39:

    auðvitað.. Leoncie!! En er hún ekki flutt af landi brott? Og.. sífúl út í íslendinga sem kunna “ekki gott að meta”? :) hún var amk farin að hóta því..
    Kv. úr zurichþokunni
    harpa

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.