Hvenær er partí partí?
23 October 2005 | Rúna
Er það séríslenskt fyrirbæri að partí sé ekki partí nema góður hluti af gestunum kasti upp, drepist eða geri sig að fífli á einhvern annan hátt?
Ég hélt nefnilega bekkjarpartí í gærkvöldi og það sást ekki vín á nokkrum einasta manni.
Ekki nema á gestgjöfunum.
4 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Hvað er að þessu fólki?! Partí og ekki að drekka?! Veit fólk ekki að það er bara leyfilegt ef maður er á bíl, og það má bara eiga við um minna en fjórðung partígesta, annars er það ekkert partí, heldur Get-together!! Fólk sem ekki kann reglurnar..puh!
Það að drekka ekki í partýum er siður sem að calvinistar komu inn hjá fólki og til að komast hjá þessum aumingjaskap er best að brenna 2 sem að drekka ekki og leyfa svo afgangnum að læra af því.
In Vino Veritas.
Já, nú erum við að tala saman!! :)
Kommon! Er ekki soldið langt gengið að setja út á þá sem geta skemmt sér án áfengis. Íslendingar eru þekktir fyrir að geta ekki talað saman án þess að drekka í sig kjarkinn. Sjálf hrópa húrra fyrir þeim sem geta það! Í mínum huga lýsir það sjálfsöryggi. Og hananú!