Norrænt eðli?

29 October 2005 | Rúna

Í skólanum höfum við mikið talað um steríótýpur og fordóma. Samkvæmt þeim er fólkið í Suður-Evrópu hávært og kátt meðan Norður-Evrópubúar eru alvarlegir og lokaðir. Það er svona nokkurs konar lykilsetning í fræðunum að slíkar alhæfingar séu af hinu slæma og að við eigum að dæma út frá einstaklingunum en ekki uppruna. En þegar ég lít á nemendahópinn á ég erfitt með að taka undir það.

Stærsti hópurinn kemur frá Suður-Evrópu. Þar sem þau eru í meirihluta ráða þau líka mestu um hvaða tónlist er spiluð þegar við hittumst og undantekningarlaust er eitthvað seiðandi sömbu-drasl látið á fóninn. Þá flykkjast stúlkurnar á dansgólfið og hrista á sér brjóstin eins og þær eiga lífið að leysa. Það er ekki fyrr en undir lokin að ég næ að stöðva þennan hrylling með einhverju sem að mínu mati er djammtónlist. Svona rokk sem maður getur dillað sér við án þess að vita hvenær vinstri fóturinn á að vera hvar og þess háttar. Í besta falli get ég fengið Írann og Þjóðverjana með mér í svona drumbadans, enda eru þeir frá næstnyrstu breiddargráðunni í hópnum.

Og öll þessi snertiþörf, maður lifandi. Ég geng ekki inn í skólastofuna að morgni, þreytt og mygluð, án þess að fá nokkur faðmlög. Jú, jú, ég er líka alveg glöð að sjá þau eftir hálfs sólarhrings fjarveru, en ég læt mér nú yfirleitt bara nægja að brosa. Og þetta er ekki bara ég og einhver snertifælni í mér, það er ég viss um. Ég veit ekki um neinn í mínum íslenska vinahópi sem myndi faðma næstum ókunnuga manneskju að morgni dags. Þá finnst mér nú kossarnir á kinnarnar skárri, þótt ég eigi ennþá í erfiðleikum með að spá fyrir um hvað ég eigi að veita marga.

Ég hef verið dugleg að hitta krakkana utan skóla en um helgina ætla ég að taka mér frí. Planið þeirra er nefnilega að fara á brasilískt diskó þar sem á að dansa sömbu fram á nótt. ¡No Graçias!, ég verð frekar heima hjá mér og geri eitthvað minna félagslegt. Eins og köld eyja.

5 Comments

  1. Alla said on 29 Oct 2005 at 14:49:

    Ég hef reyndar vitað það í tíu ár að ég fæddist á rangri breiddargráðu. Ég kann hvergi betur við mig en í félagsskap spánverja, ítala og mexikana þar sem maður faðmar og kyssir fólk þegar maður hittir það, allir tala hátt og mikið, grípa frammí, nota alla vöðvana í andlitinu þegar þeir tala, hreyfa hendurnar og jafnvel allan líkaman til að gera sem best grein fyrir máli sínu og sýna tilfinningar sínar, sama hvar á skalanum þær eru. Já, og dansa salsa :)

  2. Hrönn said on 29 Oct 2005 at 17:27:

    Rúna mín, auðvitað ferðu á Brasilískt diskó and shake those titties!! Það er eitthvað svo mikið þú ;) Bara ekki gleyma mini pilsinu, 10 sm hælunum og flegna glimmer bolnum þínum!

  3. Anna said on 29 Oct 2005 at 23:42:

    Luftgitaaaaar! Ég dansa ekki!

    Skólafélagar mínir frá sudraenni breiddargrádum kalla mig “fucking north european”. The rest is silence.

  4. Von Essling said on 30 Oct 2005 at 09:05:

    Taktu eftir því hvernig að þetta snýst algerlega við þegar að fólk drekkur.

  5. Ragnhildur litla frænka said on 1 Nov 2005 at 01:10:

    maður þarf nú ekkert að fara sunnar en london, virðist vera…hér eru allir alveg í því að smella á mann kossi, einum á hvora kinn, bara til dæmis þegar maður er kynntur fyrir þeim í fyrsta skiptið…maður half roðnar í öllum þessum atlotum

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.