Archives for November 2005
Amerísk gæs
21 November 2005 | molar | 10 Comments
Í vikunni mun ég gera eitthvað sem ég hef aldrei gert áður. Svo vill til að bekkjarsystir mín, málglöð suðurríkjastúlka sem dansar línudans í frístundum, er að fara að ganga í það heilaga með sveitapilti úr Brandenburg. Auðvitað var bekkurinn, eða þær tuttugu stúlkur sem í honum eru, sammála um að það þyrfti að gæsa […]
Haustið er komið!
16 November 2005 | molar | 1 Comment
Nú er loksins farið að kólna í Berlín. Við erum farin að hækka í ofnum heimilisins og kaldir fingurnir kalla á vettlinga á leiðinni í skólann. Mér finnst það bara gott mál. Ég var nefnilega farin að örvænta þegar ég sat úti í sól og blíðu í síðustu viku og áttaði mig á því að […]
Hopp og hí
11 November 2005 | molar | 1 Comment
Eftir marga mánuði af fögrum fyrirheitum er ég byrjuð í líkamsrækt. Ég veit reyndar ekki hvort “byrjuð” sé rétta orðið, þar sem ég er einungis komin nokkuð á leið í innritunarferlinu. Í Berlín er semsagt álíka mikið mál að sækja um kort í ræktina eins og að sækja um í háskóla sem útlendingur. Ferlið er […]
Bolir
2 November 2005 | molar | 10 Comments
Ég get ekki gert að því — mér þykja þessir bolir dáldið sniðugir:
Ég myndi samt varla ganga í þeim hér í Berlín…