Amerísk gæs

21 November 2005 | Rúna

Í vikunni mun ég gera eitthvað sem ég hef aldrei gert áður. Svo vill til að bekkjarsystir mín, málglöð suðurríkjastúlka sem dansar línudans í frístundum, er að fara að ganga í það heilaga með sveitapilti úr Brandenburg. Auðvitað var bekkurinn, eða þær tuttugu stúlkur sem í honum eru, sammála um að það þyrfti að gæsa brúðina tilvonandi.

Nú sjáið þið mig auðvitað í anda teyma stúlkugreyið í apabúningi dauðadrukkna með eitthvað bjánalegt skilti framan á sér í kringum Brandenborgarhliðið. Tuttugu gargandi kvenmenn á leið á strippbúllu eða eitthvað álíka. Kenna henni að lifa lífinu áður en hlekkir hjónabandsins taka við og allt það.

En sú mun ekki vera raunin. Gæsin var nefnilega höfð með í ráðum og komst að þeirri niðurstöðu að við myndum halda upp á þakkargjörðahátíðina fyrst partíið ber upp á sama dag. Við munum allar koma með veitingar og svo verður sest í hring og þakkað fyrir.

Alltaf er maður að læra eitthvað nýtt. Mitt fyrsta gæsapartí og mín fyrsta þakkargjörðahátíð á sama kvöldi. Bráðum fer ég að taka upp Valentínusardaginn líka…

10 Comments

  1. Ragnhildur litla frænka said on 22 Nov 2005 at 00:03:

    Þetta hljómar ekki eins og proper gæsapartí ;)

  2. sun said on 22 Nov 2005 at 00:23:

    hljómar skemmtilega samt:)

  3. harpa said on 22 Nov 2005 at 15:55:

    stopp! það er bannað að ganga svo langt að fara halda upp á einhvern hjartadag sem enginn veit út af hverju er..

  4. Ragnhildur said on 23 Nov 2005 at 11:28:

    Ef maður getur fengið gjafir út úr því þá why not….

  5. harpa said on 23 Nov 2005 at 17:01:

    við höfum okkar eigin -konudag og bóndadag. Og ef menn þurfa aukadag til að minna fólk á þá sem þeir elska þá finn ég til með því fólki. sorrí, ætla ekki að stíga á neinar tær, bara mín skoðun.

  6. Ragnhildur litla frænka said on 24 Nov 2005 at 20:32:

    þarf ekkert að minna fólk á þá sem það elskar….bara fá meiri gjafir :)

  7. Alla said on 25 Nov 2005 at 21:01:

    Sammála Hörpu. Við höfum okkar íslensku hefðir og venjur. Það er engin þörf á því að apa allt upp sem Bandaríkjamenn gera!

  8. Von Essling said on 26 Nov 2005 at 06:28:

    Þetta er allt rangt. Fyrst áttuð þið að umskera brúðina og svo láta hana biðja til guðs í heilan sólarhring í köldu, dimmu herbergi.

  9. Ragnhildur said on 1 Dec 2005 at 14:14:

    Hvað er í gangi, af hverju er ekkert bloggað á þessu heimili?! Ertu ennþá í gæsapartíinu, Rúna mín?!?!?!

  10. Hrönn said on 2 Dec 2005 at 23:31:

    Þetta fer að verða dularfullt með Rúnu og gæsapartýið…. Maður hefur nú heyrt sögur um steggjaparty gone wild en gæsathanksgiving party… hmmm

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.