Bomba!
8 December 2005 | Andrés
Aldeilis mistókst mér að hafa það notalegt í hádegishlénu mínu í dag. Ég var búinn að kaupa mér Mentospakka og hugsaði mér gott til glóðarinnar að setjast útá eyjuna á miðri Unter den Linden, rétt fyrir framan skólann minn, og maula á namminu fyrir aftan styttuna af Friðriki keisara á hestbaki. Ég var nýsestur þegar loftið fylltist af sírenuvæli og allt lögreglulið Berlínar umkringdi mig.
Ekki skilja það sem svo að ég hafi verið að brjóta einhver lög. Löggan virtist minnstar áhyggjur hafa af nammigrís á garðbekk — þeir hófust hinsvegar þegar handa við að loka götunum til allra átta. Þegar litið er til þess að Unter den Linden er ein helsta umferðaræð borgarinnar sést að þetta var stærðar aðgerð. Langt kominn með Mentosið ákvað ég að rölta að næsta húsi, skrifstofum Deutsche Bank, og reyna að komast að því hvað væri á seyði.
„Hvurn fjárann ertu að gera vitlausu megin við öryggislínuna,“ spurði lögregluþjónn mig höstuglega og benti mér í framhaldinu á að elta hitt fólkið. „Hitt fólkið“ starfaði allt hjá Deutsche Bank, þannig að ég fylgdi skriðu jakkafataklæddra manna í átt að örygginu undir gelti gjallarhorna löggunnar (pínu „schnell, schnell“-fílingur). Þegar þangað var komið var ég kominn með leið á að reyna að grennslast fyrir um upptök óróans (reiknaði bara með að einhver hefði sent bankanum miltisbrand) og fór í tíma.
Eftir tímann ætlaði ég aldeilis að vera duglegur og líta á bókasafnið í aðalbyggingunni. Nú komst ég ekki einusinni hálfa leið að skólanum — löggan var búin að færa öryggislínuna út þannig að hún náði yfir fjórar húsalengjur og búin að rýma skólann. Þeir höfðu nefnilega fundið 500 kílóa breska sprengju úr seinna stríði undir gangstéttinni fyrir aftan styttuna af Friðriki keisara á hestbaki og voru að dunda sér við að aftengja hana.
Ég prísaði mig sælan að hafa bestu afsökun í heimi ef kennarinn spyr mig á morgun afhverju ég sé ekki búinn að læra heima.
11 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Ja hér drengur!
Ritlin gerast ekki meira krassandi.
(ps.netfangið mitt/okkar er ekkert að virka, vill ekki hleypa mér nálægt sér hvað þá meira)
sjitt, það er ekki lítið sem gengur á þarna :)
Jedúddamía! Það hefði nú verið öllu verra hefði hann Andrés okkar verið sprengdur í loft upp af bretum….
En ég er enn að hlæja að Gobbedígobb!! hahaha þvílík snilld! ;)
Sýnir manni helst fram á hversu Mentos er hræðilegur hlutur.
Frábær saga! Það verður erfitt að koma með næstu færslu á eftir þessari. Hún eiginlega toppar allt!
Ef ég félli skyndilega frá í dag þá myndi ég vilja hafa hálfan Mentos pakka í maganum! :)
Ég styð mentosát andrésar. það lengi lifi!
Já maður, áfram mentos!
Mentos kemur í stautum eða staukum, jafnvel í rúllum, en alls ekki í pökkum. Að minnsta kosti ekki hérlendis.
Mér finnst þessi afsökun jafnast fyllilega á við klassíkina “hundurinn át heimaverkefnið mitt” … :)
Heyriði, hvert á ég að senda jólakortið ykkar? Vantar adressu..
Vá!
Ef ég skil þetta rétt þá var stóri bróðir minn undir vægast sagt stórri sprengju og hefði hún, þó gömul sé, sprungið þá værum við Hannes bara tveir!
Mentos er gott
Gleðileg jól!