Tannsi
15 December 2005 | Rúna
Hugur minn er svo einfaldur að ég get bara hlakkað til eins atburðar í einu – eða kviðið fyrir einu í einu. Eftir að hafa hlakkað til íslenskra jóla vikum saman fór ég allt í einu að finna fyrir óbærilegum verkjum – tannpína herjaði á mig sem aldrei fyrr. Eftir mikið væl fór ég á tannlæknastofuna í húsinu við hliðina og pantaði mér tíma.
Nú er rétt að bæta því við að ég er afskaplega tannlæknafælin manneskja og hef ekki látið sjá mig á slíkri stofu í skammarlega langan tíma. Síðustu daga hef ég lítið getað hugsað um heimferðina og jólin, því ég var alltaf með hugann við verkinn í bölvaðri tönninni og hnútinn í maganum vegna fyrirhugaðrar heimsóknar til ansans tannsans. Hann myndi örugglega skamma mig fyrir slæma tannhirðu og bora gat á hverja taug í munninum á mér og ég myndi skríða heim með ekka.
Í dag rann svo upp þessi hræðilegi dagur sem ég hafði haft svona miklar áhyggjur af. Eftir stórt knús frá Andrési fór ég á stofuna með sveitta lófa og titrandi á beinunum. En þetta var bara hreint ekki svo mikið mál. Ég var ekki einu sinni deyfð því tannsinn taldi að ég hefði það mikið víkingablóð í æðum að ég gæti harkað þetta af mér – sem ég og gerði. Eftir aðgerðina greindi hann mér frá því að það væru einhverjar líkur á að ég myndi fá agalega tannpínu á morgun og þá þyrfti ég að koma til hans á stundinni. Svo hvítnaði hann pínu þegar ég sagðist myndu verða í flugvél allan daginn og sagði að þetta hefði kannski verið pínu “dumm” hjá sér.
En ég hef ekki nokkrar áhyggjur af slíkri óheppni því nú er komið nýtt mál á dagskrá: á morgun förum við Andrés til Íslands! Tilhlökkunin í maganum á mér er allt of mikil til að leyfa einhverjum barnalegum áhyggjum af tannpínu að komast að. Eftir sólarhring verðum við sest upp í flugvél á leið til Kaupmannahafnar og munum svo lenda í Keflavík upp úr tíu um kvöldið. Það er meira að segja aldrei að vita nema hægt sé að koma auga á okkur skötuhjúin sitjandi að sumbli á einhverju öldurhúsanna í Reykjavík aðfaranótt laugardags.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Ó! Svo ég verð að kíkja út á lífið í von um að sjá ykkur :)
Gleðilegt allt saman…en á sama tíma verð ég á leið til Kenya! Hah, ég vinn!
njótið íslenskra jóla!
Rúna -alla mína samúð út af tönninni.. Gekk í gegnum þetta í haust :S