Grafarvogsbúinn

18 December 2005 | Andrés

Eftir að hafa setið í vélinni frá Kaupmannahöfn nærri tveimur tímum of lengi (þurftum að bíða eftir ráðherra og fylgdarliði hans — Saga Class ræður öllu) vorum við meira en til í að kíkja aðeins út á lífið í Reykjavík og hrista á okkur skankana. Okkur til óblendinnar ánægju hafði ekkert breyst — við komum við í lúgunni hjá Hlölla um sexleytið.

Í gegnum Grjótaþorpið löbbuðum við samferða nokkrum strákum sem voru á leiðinni í eftirpartí. Einn þeirra var óttalega vinalegur og fór að spjalla við okkur Rúnu. “Búið þið hérna í hverfinu,” spurði hann fljótlega. “Nei, reyndar búum við í Berlín,” svaraði ég sannleikanum samkvæmt. Þá kveður við í kauða, “já, ég er sko úr Grafarvogi — ég þekki ekkert svona 101-dæmi.”

2 Comments

  1. harpa said on 20 Dec 2005 at 12:24:

    ha ha ha!

  2. Ragnhildur litla frænka said on 8 Jan 2006 at 22:29:

    ja hérna….börn nú til dags!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.