Borgararnir

23 December 2005 | Andrés

Einn helsti munurinn á Berlín og Reykjavík eru hamborgararnir. Í Berlín er fjandanum erfiðara að finna bita sem er ekki slímugur kjötfarsklatti eða þaðan af verra. Í Reykjavík rekur hver eðalstaðurinn annan, safaríkir og bragðgóðir borgarar, stökkar franskar og allt með girnilegri kokteilsósu. Þessvegna var ég býsna feginn að setjast í stofuna hjá Svenna bróður Rúnu um daginn með “take-away” úr hamborgarabúllu Tómasar. Mikið óskaplega bragðaðist hann vel. Degi síðar fékk ég sönnunargögn fyrir því að grunur minn um bestu borgara bæjarins reyndist á rökum reistur.

Við settumst á Vitabar (bestu borgarar bæjarins) og pöntuðum okkur borgara, franskar og bjór. “Mikið óskaplega er þetta gott,” kyrjum við í kór hvert við annað. “En hver situr þarna á næsta borði? Er þetta ekki Tommi sem á hamborgarabúllunni?”

Þar sem fagmennirnir versla, þar er þér óhætt…

2 Comments

  1. móa said on 29 Dec 2005 at 15:35:

    verð að vera fullkomlega sammála með þessa berlínsku, hélt að minn einn hamborgarabiti á shonefeld yrði minn síðasti.

  2. Edda said on 30 Dec 2005 at 03:11:

    ó my god hvað mig langar í íslenskan hamborgara!!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.