Archives for January 2006
Stuðklúbbur
29 January 2006 | molar | 1 Comment
Hvað gerir maður þegar sambýlismaðurinn fer til Íslands og maður er einn næstum því í fyrsta skipti á ævinni og er eftir nokkra daga farinn að tala við sjálfan sig? Svarið er einfalt. Maður slær upp saumaklúbbi.
Hugmyndin með saumaklúbbnum var upprunalega sú að við myndum í alvöru fást við einhverjar hannyrðir meðan á skrafinu stæði, […]
Bókasafn
28 January 2006 | molar | 3 Comments
Áður en við fluttum til Berlínar var ég í vanskilum með tvær bækur hjá Borgarbókasafni. Núna, tveimur árum síðar, rötuðu þær loksins aftur í safnið. Kominn tveimur árum framyfir hefði ég búist við himinhárri sekt. En hvað kom í ljós? Sektin hljóðaði uppá skitinn fjögurhundruðkall!
Skoðanir
25 January 2006 | molar | 2 Comments
Þessa dagana er ritstjórn kein betreff millilanda — ég þurfti að skjótast til Íslands og skildi Rúnu eftir á Dunckerstraße. Einhver máttar-/yfirvöld hafa greinilega gætur á okkur, því ég var varla kominn inn úr dyrunum hjá mömmu eftir langt ferðalag þegar sími heimilisins hringdi og spurt var um mig. Mamma rétti mér tólið og þegar […]
Til eru fræ allsstaðar
25 January 2006 | molar | 1 Comment
Fyrst þegar ég flutti til Berlínar kipptist ég alltaf við þegar heyrði íslenska tónlist í útvarpinu. Ég er reyndar ekki það mikil steik að hoppa hæð mína í loft upp við röddina hennar Bjarkar, en mér fannst ákaflega tilkomumikið að heyra þýskt útvarpsfólk spila Emilíönu, Sigur Rós og Gus Gus svo dæmi séu tekin. Nú […]
23. janúar
23 January 2006 | molar | 2 Comments
Samkvæmt útvarpsviðtali í morgun er búið að sýna fram á að 23. janúar er ömurlegasti dagur ársins. Einhver þýskur sálfræðingur hefur eitt mörgum árum í að finna þetta út og komst að niðurstöðunni eftir að hafa reiknað inn í ólíka þætti. Þeir eru til dæmis skammdegisþunglyndi, leiði á vinnu eða námi eftir jólafríið og of […]
Bóndadagur
21 January 2006 | molar | 2 Comments
Ég hef aldrei áður haft það mikið að gera í lífinu að ég hef þurft að notast við dagbók til að skipuleggja tímann minn. Nú veit ég ekki hvað ég gerði ef ég hefði ekki litla almanakið frá KB-banka sem pabbi gaf mér til að punkta niður hitt og þetta.
En almanakið sannaði aldeilis tilgang sinn […]
Skraut á gangbraut
10 January 2006 | molar | 2 Comments
Ég skellti upp úr þegar ég las smáauglýsingu á vefsíðu Baggalútar þar sem boðið var upp á lítið notað en mikið skreytt jólatré gefins. Baggalútsmönnum hefði hins vegar ekki þótt auglýsingin svo fjarstæðukennd ef þeir hefðu gengið um götur Berlínar nýverið. Borgarar eru nefnilega farnir að henda jólatrjánum út á stétt til að ruslakarlarnir kippi […]
Bullandi stemning í Berlín og Bólivíu
9 January 2006 | molar | No Comments
Þessa dagana er aldrei þessu vant alvöru stúdentastemning á heimilinu. Lok annarinnar nálgast og óskrifuðu ritgerðirnar hlaðast upp á to-do-listanum. Ég er því farin að setjast við tölvuskjáinn þegar ég kem heim úr skólanum og reyna að hripa eitthvað niður.
Skrifborðið ber keim af hamaganginum. Þar ber helst að líta notað leirtau, óskipulagðar glósur og hundruð […]
Read ‘Bullandi stemning í Berlín og Bólivíu’
Já gríðar er gaman að syngja!
8 January 2006 | molar | 2 Comments
Mikið óskaplega fórum við í skemmtilegt partí í gærkvöldi. Bekkjarbróðir minn og vinur, hinn írski John, var að halda upp á þrítugsafmæli sitt og gerði það með stæl. John þessi ólst upp í smábæ á eyjunni grænu með tíu systkinum, háöldruðum föður og hressri móður, sem hafði ekkert á móti því að helmingurinn af systkinahópnum […]
Read ‘Já gríðar er gaman að syngja!’
Hæní
6 January 2006 | molar | 3 Comments
Um daginn kynntist ég óvenjulegum Þjóðverja. Hann var á mínum aldri, hress og kátur. Við drukkum nokkra bjóra saman og ræddum lífsins gagn og nauðsynjar. Einsog verða vill leiddust umræðurnar að ölinu sjálfu — við fórum að bera saman bjórsmekk okkar. Mikið óskaplega brá mér! Maðurinn, alinn upp í hjarta bjórmenningarinnar, tekur Heineken fram yfir […]
Perlan
5 January 2006 | molar | 4 Comments
Síðasta kvöldi jólafrísins varði ég í áður óþekktum vellystingum. Rúna lánaði mig út sem fylgisvein svo vinkona okkar þyrfti ekki að fara herralaus á nýársfögnuð í Perlunni. Sjöréttaður matseðill, frægt fólk í allar áttir og Bjarni Ara, Diddú og Raggi Bjarna röltu um matsalinn, raulandi milli rétta. Vægast sagt undarlegar aðstæður, en ég uppskar árangur […]
Nú árið er liðið…
3 January 2006 | molar | 2 Comments
Mér hefur stundum verið strítt á því hvað ég hef gaman að líta yfir farinn veg. Einn af hápunktum áramótanna hjá mér er alltaf að rifja upp hvað hefur gerst á árinu, hvort sem um góða eða slæma atburði er að ræða. Ég ætla þó ekki að fara neinu offari hér heldur koma bara með […]