Nú árið er liðið…
3 January 2006 | Rúna
Mér hefur stundum verið strítt á því hvað ég hef gaman að líta yfir farinn veg. Einn af hápunktum áramótanna hjá mér er alltaf að rifja upp hvað hefur gerst á árinu, hvort sem um góða eða slæma atburði er að ræða. Ég ætla þó ekki að fara neinu offari hér heldur koma bara með örstutt uppgjör ársins 2005.
Það er óhætt að segja að þetta blessaða ár hafi verið eitt það allra besta í mínu lífi. Ekki að svo mikið hafi gerst eða breyst, að minnsta kosti ekki miðað við árið á undan eða þaráður. Allt árið höfum við búið í litlu íbúðinni okkar á Dunckerstraße og mestu breytingarnar þar voru tilfæringar á sófa á vormánuðum og naglar negldir í vegg. Í mars gerði ég vettvangskönnun hjá bráðamóttökunni og lýtalæknum hér í bæ og líkaði ágætlega. Við ferðuðumst heilmikið, fórum til Englands í vor og keyrðum um Þýskaland í haust, að ógleymdum frábærum vikum í Reykjavík í sumar og um jólin. Á árinu hef ég aflað mér mikillar þekkingar á hugtökum eins og Integration, Rassismus og Chancengleichheit og verð líklega ennþá fróðari þegar ég fæ gráðuna mína næsta haust. En fyrir utan mikla gleði í sambúðinni einkennist þetta ár kannski einna helst af öllum nýju vinunum sem við höfum eignast, bæði íslenskum og erlendum.
Kannski það sé þessi eilífa þörf fyrir að horfa aftur á bak sem gerir mig svona meyra um áramótin. Ég á til dæmis afskaplega erfitt með að sjá árið minnka og minnka í sjónvarpinu þangað til að það er ekki lengur hægt að greina hvað stendur meðan himinninn fyrir utan gluggann ætlar að springa af ljósadýrð og látum. Allt út af því að maður er að kveðja frábært ár “og aldrei það kemur til baka”, eins og stendur í ljóðinu. En einhvern veginn er ég viss um að um næstu áramót á ég líka eftir að standa fyrir framan sjónvarpsskjáinn með kökk í hálsinum og hugsa um að ég hafi aldrei upplifað jafn gott ár og árið 2006.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Gladdi mig að lesa að naglar hefðu verið negldir:)
Hugsaði til ykkar á gamlárskvöld og rifjaði upp passlega mikið af gamlárskvöldinu 2004;)
Gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu tvö:)
Gleðilegt ár og takk fyrir gamla! Og maður á að vera meyr á gamlárskvöld!! til þess er það!