Perlan
5 January 2006 | Andrés
Síðasta kvöldi jólafrísins varði ég í áður óþekktum vellystingum. Rúna lánaði mig út sem fylgisvein svo vinkona okkar þyrfti ekki að fara herralaus á nýársfögnuð í Perlunni. Sjöréttaður matseðill, frægt fólk í allar áttir og Bjarni Ara, Diddú og Raggi Bjarna röltu um matsalinn, raulandi milli rétta. Vægast sagt undarlegar aðstæður, en ég uppskar árangur sem erfiði: Í nýjasta Séð og heyrt birtist mynd af mér í jakkafötum. Áhugasömum er bent á allar betri hárgreiðslustofur vilji þeir sjá herlegheitin.
4 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Þú tekur þig dásamlega út í flauelisfötunum með rauða bindið! Linda Rós er líka glæsileg í galakjólnum.
Yndisleg tilbreyting frá leiðinlegu svörtu smókingunum! Þið tókuð ykkur einstaklega vel út í blaðinu!
Hæhæ:) vildi bara segja takk fyrir síðast, það var gaman að fá þig í heimsókn og kynnast þér aðeins eftir allt sem Olli er búinn að segja mér frá þér.
Vá hvað ég ætla að gera mér ferð á Bókasafn Kópavogs á morgun ;)