Já gríðar er gaman að syngja!
8 January 2006 | Rúna
Mikið óskaplega fórum við í skemmtilegt partí í gærkvöldi. Bekkjarbróðir minn og vinur, hinn írski John, var að halda upp á þrítugsafmæli sitt og gerði það með stæl. John þessi ólst upp í smábæ á eyjunni grænu með tíu systkinum, háöldruðum föður og hressri móður, sem hafði ekkert á móti því að helmingurinn af systkinahópnum héngi í hjólhýsinu í garðinum, hlustaði á rokk og ról og fengi sér af og til í haus.
Í tilefni dagsins komu nokkrir bræður Johns og vinir, og var þetta fyrsta reisan upp á meginlandið fyrir þá flesta. Þeir voru að vonum afar hressir og slógu í gegn með söng, píanóleik, gítarleik og trumbuslætti, enda virðist fjölskyldan vera músíkölsk með endemum. Næstum allir veislugestir tóku undir í söng og fremst í flokki fór undirrituð, sem kallaði öðru hverju lagatitla sem hún vildi heyra og fékk næstum allar óskir sínar uppfylltar. Enda hef ég afskaplega gaman af því að syngja og vera glöð.
Andrés deilir hópsöngsáhuganum ekki með mér. Hann reyndi að deyfa sig með bjór, sem var í miklu magni á boðstólnum, og bað Írana í guðanna bænum að skipta yfir í Riverdance.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Oh hvað ég hefði verið til í að vera á svæðinu!!
Hahaha.