Bullandi stemning í Berlín og Bólivíu

9 January 2006 | Rúna

Þessa dagana er aldrei þessu vant alvöru stúdentastemning á heimilinu. Lok annarinnar nálgast og óskrifuðu ritgerðirnar hlaðast upp á to-do-listanum. Ég er því farin að setjast við tölvuskjáinn þegar ég kem heim úr skólanum og reyna að hripa eitthvað niður.

Skrifborðið ber keim af hamaganginum. Þar ber helst að líta notað leirtau, óskipulagðar glósur og hundruð blaðsíðna af ljósrituðum heimildum sem næstum allar bera fagurbrúnan hring eftir kaffibolla.

Og um hvað fjallar ritgerðin sem ég er að vinna í núna? Hvorki meira né minna en smábændur í Bólivíu og hvernig nútímavæðingin setur mark sitt á hefðir þeirra.

Það má með sanni segja að ekkert sé mér óviðkomandi.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.