Skraut á gangbraut

10 January 2006 | Rúna

Ég skellti upp úr þegar ég las smáauglýsingu á vefsíðu Baggalútar þar sem boðið var upp á lítið notað en mikið skreytt jólatré gefins. Baggalútsmönnum hefði hins vegar ekki þótt auglýsingin svo fjarstæðukennd ef þeir hefðu gengið um götur Berlínar nýverið. Borgarar eru nefnilega farnir að henda jólatrjánum út á stétt til að ruslakarlarnir kippi þeim upp í og í gær sá ég að einhver hafði ekki nennt að tína skrautið af.

Grey tréhræið lá þarna í drullupolli með silfurþráðum, jólakúlum og gylltum toppi eins og fínasta stofustáss á Þorláksmessu. Mesta furða að serían hafi ekki fengið að fylgja með.

2 Comments

  1. sun said on 10 Jan 2006 at 18:49:

    Æi hvað þetta er sorglegt. Úff ég hefði farið að skæla hefði ég séð þetta. Jólatréið sko, ekki auglýsinguna.

  2. Huitzilopochtli Von Essling said on 21 Jan 2006 at 01:01:

    Mammon borðar börnin sín!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.