Bóndadagur

21 January 2006 | Rúna

Ég hef aldrei áður haft það mikið að gera í lífinu að ég hef þurft að notast við dagbók til að skipuleggja tímann minn. Nú veit ég ekki hvað ég gerði ef ég hefði ekki litla almanakið frá KB-banka sem pabbi gaf mér til að punkta niður hitt og þetta.

En almanakið sannaði aldeilis tilgang sinn í vikunni. Einu sinni sem oftar var ég að blaða í því þegar ég rak augun í föstudaginn 20. janúar og það sem var ritað þar: BÓNDADAGUR. Það er nefnilega heljarinnar mál að muna eftir þessum blessaða degi þegar maður býr í útlöndum og hefur ekki auglýsingar íslensku blómabúðanna fyrir augunum. Ég fór til dæmis illa út úr deginum í fyrra þegar hann fór algjörlega fram hjá mér og allt árið hef ég þurft að hlusta á lúmskar athugasemdir frá hinum helmingnum um vanrækslu mína, enda klikkar hann aldrei á svona dögum sjálfur.

Þetta árið mun ég ekki þurfa að þola slíkt. Andrés fékk blóm og bakkelsi upp í rúm á föstudagsmorguninn. Og ég var að rifna úr monti allan daginn.

2 Comments

  1. harpa said on 22 Jan 2006 at 16:09:

    úps… :S

  2. Ragnhildur said on 23 Jan 2006 at 16:28:

    já, ég mundi eftir bóndadeginum…verst að ég á bara engan bónda :/

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.