23. janúar

23 January 2006 | Rúna

Samkvæmt útvarpsviðtali í morgun er búið að sýna fram á að 23. janúar er ömurlegasti dagur ársins. Einhver þýskur sálfræðingur hefur eitt mörgum árum í að finna þetta út og komst að niðurstöðunni eftir að hafa reiknað inn í ólíka þætti. Þeir eru til dæmis skammdegisþunglyndi, leiði á vinnu eða námi eftir jólafríið og of löng bið eftir að eitthvað spennandi gerist (HM í knattspyrnu var tekið sem dæmi).

Þetta árið lendir 23. janúar á kaldasta degi vetrarins til þessa. Hitinn í Berlín og nágrenni liggur í augnablikinu einhvers staðar á bilinu -18 og -23 gráður. Ég held að ég hafi sjaldan upplifað annað eins.

Í þokkabót lendir 23. janúar á mánudegi þetta árið. Á ísköldum mánudegi.

Ég held að ég fari ekki í skólann í dag.

2 Comments

  1. sun said on 23 Jan 2006 at 18:37:

    Ég færi heldur ekki í skólann ef ég væri þú.
    Voðalegar lýsingar.
    Náttföt og hlýir inniskór eru málið.

  2. gudny said on 23 Jan 2006 at 20:49:

    ég fór í skólann, það var ekki sérstaklega góð hugmynd…

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.